Fréttir

Kennsla heldur áfram með óbreyttu skipulagi

Eftir haustfríið heldur kennsla áfram með óbreyttu sniði eins og verið hefur síðustu tvær vikur.

Valtímabil heldur áfram eftir haustfrí

Rafiðnnemar fá spjaldtölvur að gjöf

Allir nemendur sem hófu nám í rafiðndeild skólans þetta haustið fengu á dögunum spjaldtölvur að gjöf. Gjöfin er frá Samtökum rafverktaka og Rafiðnaðarsambandi Íslands. Þessi gjöf er liður í átaki Samtaka rafverktaka (SART) og Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ).

Valið er hafið - upplýsingar

Ákveðið hefur verið að lengja valtímabilið en mikilvægt er að allir sem ætla að vera á vorönn nái að velja. Námsráðgjafar og áfangastjórar aðstoða nemendur við valið og verða í sambandi við nemendur. Nemendum gefst jafnframt kostur á að panta símaviðtal við námsráðgjafa eða senda tölvupóst bæði á námsráðgjafa og á áfangastjóra.

Fjarkennsla og staðkennsla næstu tvær vikurnar

Næstu tvær vikur verðum við með breytt skólahald en við tökum þó stöðuna vikulega. Stór hluti bóklegs náms verður í fjarkennslu og munu kennarar í hverjum áfanga fyrir sig senda nemendum sínum póst með upplýsingum um skipulag. Fjarkennslan verður samkvæmt stundaskrá.

Engin kennsla 5. október - starfsdagur

Mánudaginn 5. október verður starfsdagur hjá kennurum til að skipuleggja kennslu næstu daga vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu og fellur því öll kennsla niður þann dag.