Starfs- og verknámsbrautir eru miðaðar að því að veita sérhæfð starfsréttindi. Þær gera verulegar kröfur til nemenda og þjálfa með þeim fjölbreytta hæfni. Eftir að námi í skóla lýkur tekur við starfsnám en að því loknu getur nemandinn ýmist sótt beint um starfsréttindi eða tekið sveinspróf.
Starfs- og verknámsbrautir eru einnig gott almennt nám sem eykur hæfni nemandans, sérstaklega hagnýta verklega hæfni. Nemendur á starfs- og verknámsbrautum geta tekið áfanga umfram kröfu brautar sem veita þeim stúdentpróf og þannig öðlast tvöföld réttindi þ.e. starfsréttindi og rétt til inngöngu í háskóla. Aðrar leiðir til framhaldsnáms eru að skrá sig í fornámsdeildir háskóla eða nám til meistarréttinda í verknámi.