Hjúkrunarfræðingur

Við FS starfar hjúkrunarfræðingur í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Hjúkrunarfræðingur skólans er Ásdís María. Hún er með fasta viðveru í skólanum alla miðvikudaga og býður nemendum upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf, fræðslu og stuðning varðandi heilsu og líðan.

Nemendur geta leitað til skólahjúkrunarfræðings með spurningar eða áhyggjur sem tengjast til dæmis:

  • andlegri líðan og geðheilbrigði
  • kynheilbrigði og getnaðarvörnum
  • meiðslum og veikindum
  • svefni
  • mataræði og hreyfingu
  • nikótín-, áfengis- og vímuefnanotkun
  • sjálfsmynd og líkamsímynd
  • verkjum eða annarri vanlíðan
  • almennu heilbrigði og vellíðan
  • leiðsögn um heilbrigðiskerfið og þau úrræði sem standa til boða


Hjúkrunarfræðingur getur einnig aðstoðað nemendur við að finna viðeigandi úrræði og veitt ráðgjöf um hvert best sé að leita innan heilbrigðiskerfisins.

Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu og þjónustan er nemendum að kostnaðarlausu.

Nemendur geta komið í viðtal á viðverutíma eða bókað tíma fyrirfram á forsíðu heimasíðu skólans.

Viðvera: Miðvikudagar kl. 10:00–14:00
Staðsetning: Í stofunni við hliðina á Hebu, ritara skólans.

Ekki hika við að hafa samband – bæði foreldrar og nemendur eru velkomnir.

Allar spurningar eiga rétt á sér!

PANTA TÍMA HJÁ HJÚKRUNARFRÆÐINGI