Tómstundafulltrúi

Elínborg Ingvarsdóttir
Tómstundafulltrúi

Tómstundafulltrúi aðstoðar við félagslíf nemenda og vinnur að forvarnamálum.

Félagslíf

Tómstundafulltrúi er nemendum innan handar varðandi öll málefni er tengjast starfsemi NFS. Í því felst m.a. að tómstundafulltrúi:

  • Situr fundi með stjórn NFS varðandi skipulag félagslífs nemenda og aðstoðar við gerð starfs- og fjárhagsáætlana.
  • Situr fundi með formönnum klúbba.
  • Aðstoðar nemendur við að koma með hugmyndir að klúbbastarfsemi, skipulagi og auglýsingum.
  • Er viðstaddur uppákomur á vegum NFS.
  • Sér um að fá kennara eða annað starfsfólk til að vera í gæslu á uppákomum á vegum NFS í samráði við skólameistara.
  • Aðstoðar nemendur við leyfisbeiðnir til lögreglu.
  • Sér til þess að samskipti nemenda og lögreglu varðandi dansleiki gangi greiðlega.
  • Er tengiliður milli stjórnenda skólans og NFS.
  • Upplýsir kennara og aðra starfsmenn reglulega um hvað er á döfinni hjá NFS.
  • Hefur samráð við umsjónarmann um notkun NFS á húsnæði skólans.

Forvarnir

FORVARNASTEFNA FJÖLBRAUTASKÓLA SUÐURNESJA

Stefna og viðbragðsáætlun gegn einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi

Tómstundafulltrúi  vinnur að forvörnum:

  • Vinnur með námsráðgjöfum og stjórnendum að skipulagi forvarnarstarfs.
  • Vinnur með stjórn NFS að því að nemendur tileinki sér vímuefnalausan lífsstíl og virði reglur skólans. Á ferðalögum og á skemmtunum á vegum skólans og NFS er neysla áfengis og annarra vímuefna bönnuð.
  • Er nemendum til aðstoðar varðandi skipulagningu skemmtana.
  • Hefur samráð við félagsmálayfirvöld í sveitarfélögunum á Suðurnesjum um málefni ósjálfráða nemenda er tengjast neyslu vímuefna.
  • Hefur viðtalstíma fyrir starfsfólk og nemendur sem vilja tala við hann í trúnaði.
  • Vinnur úr upplýsingum varðandi vímuefnavanda nemenda og kemur málefnum í viðurkenndan farveg.
  • Greiðir götu þeirra nemenda sem vilja leita sér aðstoðar eða meðferðar vegna neyslu áfengis eða annarra vímuefna.
  • Sækir fundi og námskeið sem tengjast forvörnum.
  • Vinnur að því að nemendur skólans taki gagnrýna afstöðu til fíkniefnaneyslu. Meðal annars með því að skipuleggja fyrirlestra eða aðrar uppákomur á sal a.m.k. einu sinni á önn.
  • Skipuleggur í samráði við stjórnendur og NFS forvarnaviku á vorönn sem lýkur með kvöldskemmtun í skólanum.
Ráðgjöf - aðstoð Sími
Hjálparsími Rauða krossins 1717
Stígamót 800-6868 / 562 - 6868
Vímulaus æska / Foreldrahús 581-1799
SÁÁ 530-7600
Umboðsmaður barna 552-8999 / 800-5999
Landlæknir 510-1900
Blátt áfram 533-2929
Símsvari fíkniefnamála - Lögreglan í Keflavík 420-2456
   
88 húsið
Forvarnir.is - Vefsetur um vímumál
Ýmsir upplýsingavefir (hjá FÁ)