Val í Innu

Leiðbeiningar með vali í INNU - haustönn 2024

  1. Farðu inn í INNU.
  2. Smelltu á VAL - hægra megin neðarlega.
  3. Farðu á haustönn 2024 og ýttu á + velja áfanga (Grænn takki).
  4. Veldu áfanga sem þú ætlar að taka með því að draga áfanga úr fellilista yfir í efri gluggann undir Haustönn 2024.
  5. Veldu a.m.k. tvo áfanga í varaval. Þú þarft að draga þá úr fellilistanum yfir í varavalsgluggann.
  6. Þegar val er búið þarf að staðfesta valið - Staðfesta val (Appelsínugulur takki uppi hægra megin).
  7. Staðfestu valið með því að ýta á Staðfesta val á Haustönn 2024 (Blár takki). 
Elín Rut Ólafsdóttir
Áfangastjóri, námsráðgjafi
Guðmundur Grétar Karlsson
Áfangastjóri, efnafræði