Mötuneyti nemenda

  • Mötuneyti nemenda er á 1. hæð skólans við salinn. Þar er boðið upp á brauð og ýmsar mjólkurvörur en auk þess eru framreiddir heitir réttir í hádegishléi.
  • Nemendum er treyst til þess að ganga vel um mötuneytið og salinn sem og aðra staði í húsinu, en í því felst að skila diskum og matarleifum á þar til gerða vagna.
  • Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og súpu eða graut og oftast eru ný heimabökuð brauð með í boði. Lögð er áhersla á að elda allan matinn frá grunni úr hreinu hráefni án aukaefna.
  • Daglega er í sölu nýsmurð rúnstykki, flatkökur og samlokur. Einnig er boðið upp á úrval af mjólkurvörum, söfum og Kristal.
  • Sjálfsali er við hlið skrifstofunnar á annarri hæð. Þar eru drykkir og snarl í boði. 

Manneldisstefna skólans

Starfsmenn mötuneytis

Ketty Susana Cervantes Sipion
Starfsmaður í mötuneyti
Bruno Birins
Matreiðslumaður
Monika Sitarz
Aðstoðarmatreiðslumaður