Kennsluhættir

Í Fjölbrautaskóla Suðurnesja er lögð áhersla á að skapa góðan vinnuanda í skólastofunum þar sem metnaður ríkir.

  • Í skólanum er sérstök áhersla lögð á mannlega þáttinn og að gagnkvæm virðing og umburðarlyndi ríki í samskiptum kennara og nemenda.
  • Markmiðið er að nota árangursríkar og fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af þörfum: nemenda, námsgreinum og verkefnum, t.d. fyrirlestra, paravinnu, hópavinnu o.s.frv. Kennsluaðferðir séu miðaðar við nýjustu upplýsingatækni.
  • Kennarar skólans eiga gott samstarf og á hverri önn eru haldnir 3-4 deildarfundir og 3-4 sviðsfundir þar sem þeir ræða fagleg mál og samræma starfshætti sína.
  • Kennsla er skipulögð í 60 mínútna kennslustundum. Frá kl. 8:05 til 15:15 (einstaka áfangar eru til kl. 16:20) mánudaga til fimmtudaga og 8:05-14:10 á föstudögum.