Fótaaðgerðafræðingar meta ástand fóta, greina fótamein og meðhöndla þau fótamein, sem ekki krefjast sérstakrar læknisfræðilegrar meðferðar. Markmið náms og kennslu á starfsmenntabrautum framhaldsskóla er að gera nemandann hæfan í starfsgrein sinni og þjálfa verklega færni sem nýtist honum til starfa á atvinnumarkaði. Nám í fótaaðgerðafræði miðar að því að þjálfa færni og hæfni nemanda til þess að standast kröfur heilbrigðis- og félagsþjónustunnar hverju sinni um fagleg vinnubrögð, nákvæmni og áreiðanleika. Námið býr nemandann undir störf við meðferð fótameina skjólstæðinga innan og utan stofnana. Fótaaðgerðafræði er löggilt starfsgrein samkvæmt lögum nr. 34/2012. Þeir sem ljúka námsbrautinni skv. námskránni, eða öðru jafngildu námi, geta sótt um starfsheitið fótaaðgerðafræðingur á grundvelli reglugerðar nr. 1107/2012.
Ef umsækjendur um nám í fótaaðgerðafræði eru fleiri en pláss sem eru í boði er umsóknum forangsraðað eftir fyrra námi, fyrri störfum og aldri umsækjenda. Námið er ætlað þeim sem ætla sér að starfa í faginu til framtíðar en það er ekki frístundanám.
Þegar sótt er um nám þurfa öll gögn um fyrra nám að fylgja umsókn. Umsókn verður ekki skoðuð og metin ef nauðsynleg gögn fylgja henni ekki.
* Áfangarnir Upplýsingaleit og fagmál (UPFH2BÓ03) og Öldrunarferli (ÖLDF1ÖL05) eru ekki kenndir við skólann og þurfa nemendur því að taka þá í öðrum skólum meðfram sérgreinaáföngum brautarinnar. Líkamsbeiting (LÍBE1LK01) er kennd við skólann í staðnámi en einnig er mögulegt að taka hann í öðrum framhaldsskólum. Nemendur geta fengið þessa áfanga metna úr fyrra námi.