Farsældarþjónusta

Farsæld og tengiliðakerfi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Farsæld barna og ungmenna
Farsæld barna felur í sér að börn og ungmenni fái þann stuðning sem þau þurfa þegar þau þurfa hann. Samkvæmt farsældarlögum (nr. 86/2021) á þjónusta við börn og fjölskyldur að vera samfelld, skipulögð og samræmd. Markmiðið er að tryggja rétta aðstoð á réttum tíma og koma í veg fyrir að börn falli á milli kerfa. Lögin ná til barna undir 18 ára aldri en Fjölbrautaskóli Suðurnesja vinnur áfram í anda þeirra fyrir eldri nemendur.

NÁNARI UPPLÝSINGAR UM FARSÆLD BARNA 

Tengiliðir í FS
Tengiliður er fyrsti viðkomustaður þegar áhyggjur vakna um líðan, þátttöku, aðstæður eða stuðningsþörf nemanda. Allir geta nýtt sér samþætta þjónustu þegar þörf er á að samræma stuðning frá fleiri en einum aðila.
Tengiliður:

  • tekur á móti áhyggjum og upplýsingum
  • ræðir stöðu mála og metur stuðningsþörf
  • vinnur í nánu samstarfi við foreldra og þjónustuveitendur
  • veitir upplýsingar um úrræði og næstu skref
  • samræmir stuðning þegar þörf er á

Hlutverk tengiliðs er að styðja og einfalda – ekki flækja.

Hverjir eru tengiliðir?

Brautarstjóri starfsbrautar
Telma Rut Eiríksdóttir, brautarstjóri starfsbrautar, er tengiliður með sérþekkingu á stuðningi við nemendur með fjölbreyttar og oft flóknar þarfir. Hún vinnur náið með umsjónarkennurum og stoðþjónustu að mati á stöðu nemenda, mótun stuðnings og eftirfylgni.

Skólafélagsráðgjafi
Rannveig Sigríður Ragnarsdóttir veitir stuðning þegar nemendum líður illa, upplifa streitu, kvíða eða aðra vanlíðan sem hefur áhrif á daglegt líf eða skólagöngu. Hún styður einnig við nemendur í félagslegum aðstæðum, samskiptum og þegar erfiðar lífsaðstæður, heima eða annars staðar, hafa áhrif á líðan eða nám.

SENDA SKILABOÐ Á TENGILIÐI FARSÆLDAR

Bráðaaðstoð
Ef líf eða öryggi er í hættu skal hringja strax í 112. Einnig eru hjálparsímar opnir allan sólarhringinn.

Hvenær á að hafa samband? 

Fyrir nemendur

  • Þegar þér líður ekki vel
  • Þegar mæting versnar
  • Þegar félagslegar áskoranir koma upp
  • Ef þú ert að hugsa um að hætta í skóla

Þú þarft ekki að vera viss um hvað er að, það er nóg að hafa áhyggjur.

Fyrir foreldra

  • Þegar áhyggjur vakna af líðan eða aðstæðum barns
  • Þegar stuðningur þarf að vera skýrari
  • Þegar fleiri en einn aðili kemur að málinu
  • Þegar óskað er eftir samþættriþjónustu

Fyrir starfsfólk

  • Þegar áhyggjur eru viðvarandi
  • Þegar þörf er á samhæfingu eða markvissari stuðningi

Hvað gerist þegar haft er samband?

  1. Samtal
    Farið er yfir stöðu mála og áhyggjur.
  2. Mat á stuðningsþörf
    Metið er hvort málið sé leyst innan skólans eða hvort þörf sé á frekari samhæfingu.
  3. Samráð um næstu skref
    Nemandi og foreldrar taka þátt í ákvörðunum í samræmi við aldur og þroska.
  4. Eftirfylgni
    Fylgst er með framvindu og stuðningur lagaður eftir þörfum.

Markmiðið er einfalt og skýrt ferli þar sem ábyrgð og hlutverk eru ljós.

SENDA SKILABOÐ Á TENGILIÐI FARSÆLDAR

Samþykki og trúnaður

Samþykki er grunnforsenda alls samstarfs. Tengiliður miðlar ekki upplýsingum eða hefur samband við aðra þjónustuaðila nema með upplýstu samþykki nemanda og/eða foreldra.

Áður en upplýsingar eru miðlaðar er alltaf rætt:

  • hvaða upplýsingar
  • við hvaða aðila
  • í hvaða tilgangi

Upplýsingamiðlun er í samræmi við lög og hagsmuni nemandans.

Ef öryggi barns eða annarra er í hættu ber skólanum lagaskylda til að tilkynna til viðeigandi aðila.

Samþætting þjónustu

Samþætting er notuð þegar fleiri en einn aðili þarf að koma að máli til að tryggja samfelldan stuðning.

Samþætting:

  • hefst aðeins með samþykki
  • byggir á samráði
  • tryggir skýra ábyrgð

Ef stuðningur innan skólans er nægur er ekki farið í formlega samþættingu.

Beiðni um samþættingu þjónustu

Til að hefja formlega samþættingu fylla foreldrar og/eða nemandi út eyðublaðið Beiðni um samþættingu þjónustu.

Með undirritun er veitt heimild til að:

  • afla og miðla nauðsynlegum upplýsingum
  • samræma þjónustu milli aðila
  • vinna að skipulagðri og samfelldri þjónustu

Upplýsingamiðlun er ávallt afmörkuð við það sem er nauðsynlegt og í samræmi við lög.

eyðublað - Beiðni um samþættingu þjónustu

Þjónustustig (stutt skýring)

1. stigs þjónusta í FS felur í sér bæði grunnþjónustu innan skóla og snemmtækan, markvissan stuðning þegar áhyggjur vakna. Hún er ætluð að mæta þörfum nemenda áður en flóknari þjónusta er nauðsynlegt.
Grunnþjónusta er sú þjónusta sem allir nemendur hafa aðgang að í daglegu skólastarfi.
Hún er hluti af eðlilegum rekstri skólans og miðar að vellíðan, námi og öryggi.
Dæmi um grunnþjónustu:

  • kennsla og umsjón
  • náms- og starfsráðgjöf
  • skólafélagsráðgjöf
  • bókasafn, mötuneyti og dagleg nemendaþjónusta
  • stoðtímar og viðtalstímar kennara

Fyrsta stigs þjónusta er snemmtækur og markviss stuðningur sem er veittur með hliðsjón af þörfum nemanda og getur haft skýr markmið, án þess að vera umfangsmikil eða með fasta umgjörð.
Dæmi um fyrsta stigs þjónustu:

  • einstaklingsbundinn stuðningur í námi
  • tímabundin ráðgjöf eða samtöl
  • snemmtæk úrræði innan eða utan skólans
  • samvinna við foreldra eða aðra þjónustuaðila
Nemandi þarf ekki að vera í alvarlegum vanda til að fá fyrsta stigs þjónustu.


2. stig

Skipulagðari og sérhæfðari þjónusta með aukinni samhæfingu. Þá er skipaður málstjóri.
Á 2. stigi er þjónustan oft skipulagðari og sérhæfðari, með skýrari markmið, fastari umgjörð og aukinni eftirfylgni en á 1. stigi. Hún kemur til þegar snemmtækur stuðningur dugar ekki einn og sér eða hefur ekki skilað nægjanlegum árangri.
Þegar þjónusta færist á 2. stig er skipaður málstjóri sem heldur utan um samhæfingu og eftirfylgni þjónustunnar. Hlutverk málstjóra er að tryggja samræmdar lausnir í samstarfi við þjónustuaðila, halda yfirsýn yfir stuðning og stuðla að stöðugleika í ferlinu, í nánu samstarfi við nemanda og foreldra.
Það er þjónustan sem er á 2. stigi, ekki nemandinn.


3. stig

Sérhæfð og umfangsmeiri þjónusta í samstarfi margra aðila.
Það er þjónustan sem er flokkuð í stig – ekki nemandinn.
3. stigs þjónusta er sérhæfðari stuðningur sem kemur til þegar þarfir nemanda kalla á þjónustu sem er umfangsmeiri og tímafrekari en unnt er að veita á 1. og 2. stigi. Slík þjónusta er yfirleitt veitt í samstarfi margra þjónustuaðila og byggð á heildstæðri þjónustuáætlun sem endurskoðuð er reglulega. Markmiðið er að tryggja að stuðningur sé samfelldur, viðeigandi og nægjanlegur, þannig að nemandi eigi greiðan aðgang að þeim úrræðum sem hann þarf til að ná sem bestum líðan og árangri.
Líkt og á öðrum stigum er það þjónustan sem er á 3. stigi, ekki nemandinn.

Algengar spurningar

Þarf greiningu til að fá stuðning?
Nei. Stuðningur byggir á þörf, ekki greiningu.

Hver getur óskað eftir stuðningi?
Nemandi, foreldrar eða starfsfólk.

Hvert á ég að leita fyrst?
Yfirleitt er best að byrja innan skólans, til dæmis hjá kennara, námsráðgjafa eða tengilið skólans. Ef þú ert óviss er tengiliður skólans góður fyrsti viðkomustaður.

Hvernig veit ég hvort ég (eða barnið mitt) þurfi stuðning?
Ef áhyggjur vakna af líðan, námi, mætingu eða félagslegum aðstæðum er alltaf í lagi að leita eftir samtali. Snemmtæk viðbrögð skipta máli.

Getur 1. stigs þjónusta verið utan skólans?

Já, 1. stigs þjónusta getur verið veitt utan skólans til dæmis sálfræðiviðtöl, fjölskylduráðgjöf eða önnur tímabundin úrræði.

Getur þjónusta færst milli stiga?
Já, eftir þörfum og aðstæðum.

Getur nemandi fengið þjónustu á fleiri en einu stigi?
Já. Nemandi getur fengið þjónustu á fleiri en einu stigi samtímis, eftir þörfum og aðstæðum.

Er eðlilegt að þurfa stuðning?
Já. Að leita sér stuðnings er jákvætt og ábyrgðarfullt skref.


Stuðningsúrræði og aðstoð
Ef þörf er á frekari stuðningi utan skólans eru fjölbreytt úrræði í boði. Tengiliðir skólans geta aðstoðað við að meta hvaða leið hentar best.
Athugið listinn er ekki tæmandi.

Stuðningsúrræði í nærumhverfi skólans


Félags- og velferðarþjónusta

Þessi úrræði styðja við nemendur og fjölskyldur þegar félagslegar, fjárhagslegar eða persónulegar aðstæður hafa áhrif á líðan, öryggi eða skólagöngu.

  • Barnaverndarþjónusta sveitarfélaga
    Þegar áhyggjur snúa að öryggi eða velferð barns. Hægt að leita beint eða með aðstoð skóla.
  • Bjargráð
    Ráðgjöf fyrir fjölskyldur og aðstandendur einstaklinga í fangelsi eða nýlokinni afplánun. Hægt að leita beint, er ókeypis.
  • Félagsþjónusta sveitarfélaga
    Ráðgjöf og stuðningur m.a. vegna félagslegra aðstæðna, fjárhagslegra erfiðleika eða annarra áskorana. Hægt að leita beint eða með aðstoð skóla.
  • Hlýjan (13–18 ára)
    Einstaklingsráðgjöf og stuðningur með áherslu á líðan og sjálfsmynd. Hægt að leita beint, er ókeypis.
  • Órói
    Einstaklings-, para og fjölskyldumeðferð. Hægt að leita beint, kostar.
  • Rauði krossinn á Suðurnesjum
    Félagslegur stuðningur, sjálfboðastarf og ýmis samfélagsverkefni sem stuðla að virkni og tengslum. Hjálparsími 1717. Hægt að leita beint, er ókeypis.
  • Velferðarsjóður kirkjunnar
    Félagslegur og fjárhagslegur stuðningur m.a. varðandi þátttöku í námi eða samfélagi. Byggir á grundvelli umsóknar og mats á aðstæðum hverju sinni.

Heilbrigðis- og sálfræðiþjónusta

Þessi úrræði henta þegar þörf er á heilsufarslegu mati, sálfræðilegum stuðningi eða sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu. Þau geta verið mikilvæg þegar líðan, kvíði, streita, svefnvandi, álag eða önnur heilsutengd atriði hafa áhrif á nám, virkni og daglegt líf.

  • Heilsugæsla Suðurnesja (HSS)
    Almenn og sérhæfð heilbrigðisþjónusta m.a. læknis- og hjúkrunarþjónusta, geðheilbrigðisþjónusta, sálfræðiþjónusta, ráðgjöf vegna heilsu og lifsstíls. Sum þjónusta krefst tilvísunar annars hægt að leita beit, er ókeypis fyrir yngri en 18 ára.
  • Höfði heilsugæsla
    Almenn heilsugæsla með læknis- og hjúkrunarþjónustu, er ókeypis fyrir yngri en 18 ára.
  • Sálfræðistofa Suðurnesja
    Sálfræðiviðtöl og greiningar. Hægt að leita beint, kostar.

Atvinnu- og virkniúrræði

Þessi úrræði henta ungmennum sem þurfa stuðning við að efla virkni, taka fyrstu skref á vinnumarkaði, styrkja starfsgetu eða finna nýja leið í námi eða starfi. Þau geta verið mikilvæg þegar skólaganga rofnar, námsframvinda er óregluleg eða þegar líðan og heilsufar hefur áhrif á virkni.

  • Fjölsmiðjan
    Starfsþjálfun og stuðningur fyrir ungt fólk utan náms eða vinnu. Tilvísun í samstarfi við félagsþjónustu.
  • Samvinna starfsendurhæfing
    Endurhæfingarúrræði fyrir 16 ára og eldri sem þurfa stuðning til að komast aftur í nám eða vinnu vegna heilsufarlegra og/eða félagslegra aðstæðna. Tilvísun frá lækni/VIRK.
  • Vinnumálastofnun – Atvinna með stuðningi
    Stuðningur við að finna og halda starfi, einstaklingsmiðuð ráðgjöf og eftirfylgni á vinnustað. Hægt að leita beint.
  • VIRK – Ungvirk
    Veitir fólki sem glímir við heilsubrest s.s. andlegan eða líkamelgan vanda, sérhæfða aðstoð og stuðning við að komast í vinnu eða nám samhliða annarri endurhæfingu. Tilvísun frá lækni.

Tengiliðir skólans geta aðstoðað við mat á því hvort slík úrræði henti og hvernig best sé að hefja ferlið.

Félagsstarf og tómstundir (16+)

Þessi úrræði stuðla að virkri þátttöku, félagslegum tengslum og jákvæðri sjálfsmynd. Þátttaka í tómstundum og félagsstarfi getur haft veruleg áhrif á líðan, sjálfstraust og tengsl við samfélagið. Félags- og ungmennahús bjóða upp á öruggt umhverfi, afþreyingu og stuðning.

  • 88 Húsið
    Uppspuni spunaspil: Er í boði alla miðvikudaga frá kl. 17:00 – 23:00
    Listasmiðja: Er í boði alla mánudaga og miðvikudaga frá kl. 16:00 - 18:00
  • Félagsmiðstöðin Skýjaborg í Sandgerði (og Elding í Garði)
    Opið hús öll fimmtudagskvöld frá kl. 20:00 – 22.00. Er bæði fyrir Sandgerði og Garð.
  • Félagsmiðstöðin Boran í Vogum
    Nemendur á fyrsta ári í framhaldsskóla geta mætt í félagsmiðstöðina þegar hún er opin.
  • Skátafélagið Heiðabúar
    Spennandi dagskrá í bland við ýmsa viðburði s.s. skátamót og útilegur. Vikulegir fundir á mánudögum frá kl. 20:00 – 21:30.
  • Íþróttafélög á Suðurnesjum
    Fjölbreytt íþróttastarf sem styður við hreyfingu, samveru og jákvæða þátttöku. Félagsgjöld.
  • Björgunarsveitin Suðurnes í Reykjanesbæ
  • Unglingadeildin Von í Sandgerði
  • Björgunarsveitin Ægir í Garði
  • Unglingadeildin Tígull í Vogum
  • Unglingadeildin Hafbjörg í Grindavík
  • Frístundastyrkir sveitarfélaga
    Allir yngri en 18 ára eiga rétt á styrk. Upphæð mismunandi eftir sveitarfélagi.

Stuðningsúrræði á höfuðborgarsvæðinu


Í sumum tilvikum getur verið þörf á sérhæfðari þjónustu sem ekki er í boði í nærumhverfi skólans. Þá er hægt að leita til úrræða á höfuðborgarsvæðinu. Tengiliðir skólans geta aðstoðað við að meta næstu skref.

Geðheilbrigði

  • Bergið headspace er stuðningsúrræði fyrir ungt fólk á aldrinum 12–25 ára. Boðið er upp á einstaklingsviðtöl þar sem hægt er að ræða líðan, kvíða, streitu, sjálfsmynd, nám eða félagslegar aðstæður. Hægt að leita beint, er ókeypis.
  • Domus Mentis – Geðheilsustöð veitir sérhæfða greiningu og meðferð við geðröskunum, svo sem ADHD, kvíða, þunglyndi og geðhvarfasýki, fyrir ungmenni og fullorðna. Þjónustan er gjaldskyld, ekki þarf tilvísun og hægt er að leita beint.
  • Grænahlíð er sérhæft, fjölskyldumiðað geðheilbrigðisúrræði fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–25 ára og fjölskyldur þeirra. Þar starfar þverfaglegt teymi með áherslu á áfallamiðaða og tengslaeflandi meðferð. Þjónustan er gjaldskyld og krefst þjónustubeiðni frá forsjáraðilum eða fagaðilum. Skólinn getur sent inn slíka beiðni í samráði við foreldra.
  • Krossgatan sálfræðiráðgjöf veitir sálfræðiþjónustu fyrir börn og ungmenni á einhverfurófi og foreldra þeirra. Áhersla er lögð á ráðgjöf og stuðning sem tengist samspili einhverfu og umhverfis. Þjónustan er gjaldskyld, ekki þarf tilvísun og hægt er að leita beint.
  • Lausnin – fjölskyldu- og áfallamiðstöð býður upp á sálfræðilega samtalsmeðferð, fjölskylduráðgjöf og áfallavinnu fyrir ungmenni og fullorðna. Þjónustan er gjaldskyld og ekki þarf tilvísun.
  • Litla kvíðameðferðarstöðin er sálfræði- og ráðgjafaþjónusta fyrir börn og ungmenni, með sérstök námskeið fyrir 16 ára og eldri. Unnið er með hugræna atferlismeðferð við kvíða. Þjónustan er gjaldskyld og ekki þarf tilvísun.
  • Píetasamtökin veita meðferð og stuðning fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem eru í sjálfsvígshættu eða glíma við sjálfsskaða, auk stuðnings við aðstandendur. Þjónustan er ókeypis og ekki þarf tilvísun. Hjálparsími er opinn allan sólarhringinn.
  • Skapandi meðferðir bjóða upp á meðferð sem byggir á list- og tjáningarleiðum, svo sem myndlist, tónlist eða leiklist, fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Þjónustan er gjaldskyld og ekki þarf tilvísun.

Svefnvandi

  • Betri svefn er sérhæft úrræði fyrir ungmenni og fullorðna með langvarandi svefnleysi eða svefnvanda. Unnið er með hugræna atferlismeðferð og markvissar aðferðir til að bæta svefnvenjur. Þjónustan er gjaldskyld og ekki þarf tilvísun.

Áfengis- og vímuefnaráðgjöf

  • Foreldrahús veitir ráðgjöf og meðferð fyrir foreldra og ungmenni vegna áfengis- og vímuefnavanda. Þar er boðið upp á fjölskylduráðgjöf, námskeið og langtímameðferð. Þjónustan er gjaldskyld, en getur verið niðurgreidd ef tilvísun kemur frá barnavernd.
  • Forvarnarmiðstöðin – FUNI veitir fræðslu og ráðgjöf fyrir ungmenni og foreldra. Greiningarviðtal er ókeypis en frekari viðtöl eru gjaldskyld. Ekki þarf tilvísun.
  • SÁÁ – Ungmennameðferð er sérhæfð meðferð fyrir ungmenni yngri en 25 ára með vímuefnavanda. Boðið er upp á dagmeðferð og innlagnarmeðferð. Hægt er að sækja um beint og ekki er krafist formlegrar tilvísunar.
  • Sálfræðiþjónusta barna – SÁÁ er fyrir börn á aldrinum 8–18 ára sem eiga foreldra eða nána aðstandendur með fíknivanda. Þjónustan kostar 5.000 kr. fyrir hvert viðtal og krefst tilvísunar frá fagaðila.
  • Þú skiptir máli er forvarnar- og stuðningsverkefni fyrir ungmenni í áhættuhegðun eða félagslegum vanda. Þjónustan er ókeypis og ekki þarf tilvísun.

Sorg og veikindi

  • Ljósið – Ungt fólk í Ljósinu veitir stuðning fyrir ungt fólk á aldrinum 16–25 ára sem hefur greinst með krabbamein, auk aðstandenda. Boðið er upp á endurhæfingu, jafningjastuðning og viðtöl við fagaðila. Þjónustan er ókeypis og ekki þarf tilvísun.
  • Sorgarmiðstöð veitir stuðningshópa, fræðslu og einstaklingsráðgjöf fyrir börn, ungmenni og fullorðna sem hafa misst náinn aðstandanda. Þjónustan er ókeypis og ekki þarf tilvísun.
  • Ljónshjarta eru samtök sem styðja yngra fólk sem misst hefur maka og börn þeirra. Starfið felur í sér samverustundir og fræðslu. Þjónustan er ókeypis.

Lesblinda / talnablinda

  • Betra nám (Kolbeinn Sigurjónsson) veitir sérhæfða ráðgjöf og greiningu vegna les- og námsvanda. Þjónustan er gjaldskyld og ekki þarf tilvísun.
  • Lesblind.is býður upp á greiningu og námskeið vegna lesblindu, talnablindu og tengdra erfiðleika. Þjónustan er gjaldskyld og ekki þarf tilvísun.
  • Lestur.is – Lestrarmiðstöð í Mjódd veitir greiningu og ráðgjöf vegna lestrar- og stærðfræðivanda. Þjónustan er gjaldskyld og ekki þarf tilvísun.

Ofbeldi

  • Heimilisfriður er meðferðarúrræði fyrir ungmenni og fullorðna sem beita eða hafa beitt ofbeldi í nánum samböndum. Viðtal kostar 3.000 kr. og ekki þarf tilvísun.
  • Kvennaráðgjöfin veitir ókeypis ráðgjöf fyrir 18 ára og eldri sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða kynbundinni mismunun. Ekki þarf tilvísun.
  • Taktu skrefið er úrræði fyrir ungmenni og fullorðna sem hafa áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni. Fyrsta viðtal kostar 3.000 kr. og ekki þarf tilvísun.

Heilbrigðisþjónusta

  • Átröskunarteymi LSH (BUGL)
    Sérhæft teymi innan Barna- og unglingageðdeildar Landspítala sem sinnir greiningu og meðferð við átröskunum hjá börnum og ungmennum, svo sem lystarstoli og lotugræðgi. Meðferð getur falið í sér læknisþjónustu, sálfræðimeðferð og fjölskyldumeðferð. Þjónustan er fyrir einstaklinga undir 18 ára og krefst tilvísunar frá lækni.
  • Bráða- og ráðgjafarþjónusta geðsviðs LSH
    Bráðamat og skammtímaráðgjöf fyrir einstaklinga í alvarlegri geðrænni vanlíðan, til dæmis vegna sjálfsvígshugsana, geðrofs eða mikillar krísu. Markmiðið er að meta stöðu og ákveða næstu skref í meðferð. Hægt er að leita beint án tilvísunar.
  • BUGL – Barna- og unglingageðdeild Landspítala
    Sérhæfð geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn og ungmenni undir 18 ára með flóknari eða alvarlegan geðrænan vanda, svo sem þunglyndi, kvíða, ADHD eða áfallastreitu. Meðferð getur verið í formi göngudeildar eða innlagnar. Tilvísun frá lækni er nauðsynleg.
  • Börn með svefnvanda
    Sérhæfð þjónusta fyrir börn og ungmenni með langvarandi eða flókinn svefnvanda. Unnið er með greiningu, fræðslu og markvissar aðferðir til að bæta svefn og daglega virkni. Krefst tilvísunar frá heilbrigðisstarfsfólki.
  • Geðheilsumiðstöð barna
    Veita greiningu og meðferð fyrir börn og unglinga undir 18 ára sem glíma við geðheilsuvanda, svo sem ADHD, hegðunarvanda eða tilfinningalega erfiðleika. Þjónustan byggir á þverfaglegu samstarfi og krefst tilvísunar frá fagaðila.
  • Heilsuskóli LSH
    Fræðslu- og stuðningsúrræði fyrir börn og ungmenni sem þurfa stuðning til að bæta heilsu og lífsstíl, meðal annars vegna verulegrar yfirþyngdar eða hraðrar þyngdaraukningar. Þjónustan er fyrir einstaklinga undir 18 ára og er ókeypis ef tilvísun berst frá lækni.
  • Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisbrota
    Bráðaaðstoð fyrir einstaklinga sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Þar er boðið upp á læknisskoðun, sálrænan stuðning og upplýsingar um réttindi og næstu skref. Hægt er að leita beint allan sólarhringinn og þjónustan er ókeypis.
  • Transteymi BUGL
    Sérhæfð þjónusta fyrir börn og ungmenni undir 18 ára sem upplifa misræmi milli kynvitundar og þess kyns sem þeim var úthlutað við fæðingu. Unnið er með mat, ráðgjöf og stuðning í samstarfi við

Fjarþjónusta

  • ADHD Kaos er rafrænt námskeið um ADHD fyrir ungmenni og fullorðna. Kostar 14.990 kr. og ekki þarf tilvísun.
  • Áttavitinn er upplýsingagátt fyrir ungt fólk 16–25 ára. Þjónustan er ókeypis.
  • Betri svefn – vefmeðferð er rafræn meðferð við svefnleysi og kostar 24.900 kr.
  • Hjálparsími 1717 veitir ókeypis og nafnlausa ráðgjöf allan sólarhringinn.
  • Mín líðan og Værð sálfræðiþjónusta bjóða upp á fjarviðtöl við sálfræðinga gegn gjaldi.
  • Sjúk ást – Sjúktspjall er ókeypis netspjall um óheilbrigð sambönd og ofbeldi.
  • Sjalfsvig.is er fræðslu- og upplýsingavefur um sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir.
  • Værð sálfræðiþjónusta er sálfræðiþjónusta sem býður upp á meðferð og ráðgjöf í fjarviðtölum. Kostar
  • Þú skiptir máli er upplýsinga-, forvarna- og fræðslusíða varðandi málefni eins og einelti, fíkn og sjálfsvígsforvarnir, skaðsemi, áhrif, bata og lausnir. Býður einnig upp á ráðgjöf. Er með hlaðvarp um ýmis málefni. Ókeypis.

Félagssamtök sem vinna í þágu barna og ungmenna

  • ADHD samtökin
    Fræðsla, ráðgjöf og hagsmunagæsla fyrir einstaklinga með ADHD og fjölskyldur þeirra. Bjóða upp á námskeið, stuðningshópa og upplýsingar um réttindi og úrræði.
  • Alateen – unglingadeild
    Sjálfshjálparsamtök fyrir unglinga sem eiga ættingja eða náinn aðstandanda með áfengisvanda. Þar geta unglingar hitt aðra í svipuðum aðstæðum og rætt reynslu sína og tilfinningar í öruggu umhverfi. Vikulegir fundir.
  • Dropinn – styrktarfélag barna með sykursýki
    Stuðningur og fræðsla fyrir börn og ungmenni með sykursýki og fjölskyldur þeirra. Félagið heldur viðburði og fræðslufundi og styður meðal annars ungmenni til líkamsræktar.
  • Einhverfusamtökin
    Fræðsla, ráðgjöf og hagsmunagæsla fyrir einstaklinga á einhverfurófi og fjölskyldur þeirra.
  • Félag lesblindra
    Stuðningur og fræðsla fyrir einstaklinga með lesblindu og aðstandendur þeirra. Vinna að aukinni vitund og réttindum í námi og starfi og bjóða upp á námskeið.
  • Geðhjálp
    Stuðnings- og matsviðtöl fyrir einstaklinga með geðrænan vanda og aðstandendur þeirra. Veita ráðgjöf og upplýsingar um viðeigandi úrræði og meðferð.
  • Heimili og skóli
    Landssamtök foreldra sem styðja foreldrasamstarf við skóla. Veita fræðslu og ráðgjöf um réttindi og samskipti í skólasamfélaginu.
  • Lauf – félag flogaveikra barna
    Stuðningur og fræðsla fyrir börn með flogaveiki og fjölskyldur þeirra, meðal annars í gegnum ráðgjöf og foreldraspjall.
  • Neistinn – styrktarfélag hjartveikra barna
    Stuðningur við börn með hjartasjúkdóma og fjölskyldur þeirra með fræðslu, fjárhagsaðstoð og samfélagsviðburðum.
  • Okkar heimur
    Stuðningur og fræðsla fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda. Félagið býður meðal annars upp á stuðningshópa fyrir ungmenni og fjölskyldusmiðjur.
  • Samtökin 78
    Hagsmunasamtök hinsegin fólks á Íslandi. Veita ráðgjöf, stuðning og fræðslu fyrir hinsegin börn, ungmenni og aðstandendur þeirra.
  • Sjónarhóll – ráðgjafarmiðstöð
    Ráðgjöf og fræðsla fyrir foreldra barna með sérþarfir, fötlun eða langvinn veikindi. Styðja foreldra í samskiptum við kerfið og réttindamálum.
  • SKB – Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
    Stuðningur við börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra, meðal annars með fjárhagsaðstoð, stuðningshópum og félagslegum úrræðum.
  • Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
    Stuðningur og réttindabarátta fyrir börn og ungmenni með fötlun og fjölskyldur þeirra. Bjóða meðal annars upp á meðferð, námskeið og sumardvalir.
  • Tourette samtökin
    Fræðsla og stuðningur fyrir einstaklinga með Tourette og fjölskyldur þeirra. Bjóða upp á ráðgjöf, fræðslu og samfélagsviðburði.
  • Tölvumiðstöð – Tækni, miðlun, færni
    Veitir ráðgjöf, tæknilega aðstoð og sérhæfð hjálpartæki sem styðja einstaklinga með fötlun í námi og daglegu lífi.
  • Örninn – minningar- og styrktarsjóður
    Heldur samverur og helgardvöl fyrir börn og ungmenni sem hafa misst náinn ástvin. Þátttaka er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Sjálfshjálp

  • HappApp
    Íslenskt app sem byggir á jákvæðri sálfræði og hugrænni atferlismeðferð. Inniheldur stuttar æfingar sem styðja við sjálfstraust, jákvæða hugsun og tilfinningastjórn.
  • Headspace
    Hugleiðslu- og núvitundarapp með leiðbeindum æfingum, öndunaræfingum og efni til að draga úr streitu og bæta svefn.
  • Hugarró – Sterkari út í lífið
    Íslenskt sjálfshjálparapp sem styður við seiglu, sjálfsmynd og tilfinningafærni, sérstaklega fyrir ungmenni.
  • Smiling Mind
    Hugleiðsluapp byggt á vísindalegum grunni með stuttum æfingum sem styðja við ró, einbeitingu og streitustjórnun.

Möguleg réttindi og styrkir

  • Minningarsjóður Gísla Torfasonar
    Styrkur til kaupa á námsbókum.
    Veittur samkvæmt umsókn á grundvelli sérstakra aðstæðna í janúar hvert ár.
  • Barnalífeyrir (börn yngri en 18 ára)
    48.131 kr. á mánuði.
    Greiðsla frá Tryggingastofnun til foreldra eða forsjáraðila þegar barn býr ekki hjá báðum foreldrum eða við sérstakar aðstæður. Markmið er að tryggja framfærslu barns.
  • Barnalífeyrir vegna náms (18–20 ára)
    48.131 kr. á mánuði.
    Greiðsla til foreldris þegar ungmenni 18–20 ára eru í námi og uppfylla skilyrði. Sækja þarf sérstaklega um.
  • Barnalífeyrir vegna sérstakra útgjalda
    Viðbótargreiðsla vegna aukins kostnaðar, t.d. vegna gleraugna, langvarandi veikinda eða fötlunar barns.
  • Framlag foreldris vegna menntunar eða starfsþjálfunar (18–20 ára)
    48.131 kr. á mánuði, hægt að semja um hærra framlag.
    Foreldrum getur verið skylt að greiða framfærslu vegna náms eða starfsþjálfunar ungmennis að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
  • Frístundastyrkur Suðurnesjabæjar
    48.000 kr. á ári.
    Styrkur til barna og ungmenna yngri en 18 ára til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Upphæð ákveðin af sveitarfélaginu.
  • Frístundastyrkur Voga
    42.600 kr. á ári.
    Sveitarfélagsstyrkur sem nýtist til að greiða niður kostnað við skipulagt tómstundastarf fyrir börn og ungmenni.
  • Húsnæðisbætur (18 ára og eldri)
    Upphæð fer eftir tekjum, eignum, fjölskyldustærð og leiguverði.
    Greiðslur eru frá HMS og sækja þarf um sérstaklega.
  • Hvatagreiðslur – Reykjanesbær
    45.000 kr. á ári.
    Stuðningsgreiðslur frá sveitarfélagi til að efla virkni, nám eða þátttöku í samfélaginu, samkvæmt reglum sveitarfélagsins.
  • Jöfnunarstyrkur
    120.000 kr. akstursstyrkur á önn
    204.000 kr. dvalarstyrkur
    Veittur vegna námsaðstæðna sem krefjast ferðalaga eða búsetu fjarri heimili.
  • Mæðra- og feðralaun
    13.936 kr. á mánuði með 2 börnum
    36.228 kr. með 3 eða fleiri börnum
    Greiðslur til foreldra sem bera einir ábyrgð á framfærslu barns og uppfylla ákveðin tekju skilyrði.
  • Námsstyrkir Landsbankans
    300.000 – 500.000 kr.
    Veittir samkvæmt umsókn, oft á grundvelli námsárangurs eða sérstakra aðstæðna.
  • Sérstakur húsnæðisstuðningur (18 ára og eldri)
    Viðbótarstuðningur frá sveitarfélagi vegna erfiðra félagslegra eða fjárhagslegra aðstæðna.
  • Fjárhagsaðstoð til námsmanna (18 ára+ í erfiðum félagslegum aðstæðum)
    Upphæð fer eftir mati á tekjum og félagslegum aðstæðum.
    Sveitarfélög geta veitt framfærsluaðstoð á meðan á námi stendur.
  • Umönnunargreiðslur vegna langveikra eða fatlaðra barna
    Greiðslur til foreldra sem sinna aukinni umönnun barns vegna veikinda eða fötlunar. Upphæð ræðst af formlegu umönnunarmati
  • Velferðarsjóður kirkjunnar
    Aðstoð vegna skólagjalda, bókakaupa, mataraðstoðar og tómstunda.
    Veitt á grundvelli mats á aðstæðum og í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar.
  • Styrkir á vegum stéttarfélaga
    Mörg stéttarfélög veita styrki vegna bókakostnaðar, skólagjalda, námskeiða eða heilbrigðiskostnaðar. Skilyrði ráðast af aðild og reglum viðkomandi félags.

Athugið að fjárhæðir og skilyrði geta breyst. Nánari upplýsingar má finna á island.is eða hjá viðkomandi stofnun/sveitarfélagi.