Hársnyrtiiðn 2026 - fyrri hluti (HG26)

Nám og kennsla í hársnyrtiiðn miðast við að veita almenna, fag­lega und­irstöðumenntun í grein­inni, auka færni nem­enda í meðferð hársnyrti­vara og beit­ingu áhalda og tækja. Leitast er við að þjálfa sjálfstæð vinnu­brögð nem­enda og auka hæfi­leika og getu þeirra til sam­vinnu við aðra.

Um brautina

Langar þig að verða hársnyrtir?
Í náminu öðlast þú þekk­ingu, leikni og hæfni sem er nauðsynleg í hársnyrtiiðn.
Hár­greiðsla, klipping, rakstur og litun – skap­andi fag í líf­legu starfs­um­hverfi.

Hársnyrtinámið er 6 annir auk vinnustaðanáms.

  • Grunnnám í hárgreiðslu er kennt við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Aðeins er hægt að taka grunnnámið hér en fjórar annir á grunnbraut eru kenndar á fjórum önnum. Tekinn er inn hópur í námið annað hvert ár og hann klárar annirnar fjórar áður en næsti hópur er tekinn inn.
  • Eftir það þarf að taka framhaldsbraut sem er tvær annir í Tækniskólanum í Reykjavík eða Verkmenntaskólanum á Akureyri.
  • Auk þess eru 52 vikur í vinnustaðanámi á hársnyrtistofu samkvæmt hæfnikröfum ferilbókar.
  • Verklegi hluti námsins er kennt í flæði alla morgna vikunnar auk iðnfræði og iðnteikningu.
  • Upphafskostnaður í áhöldum, skærum, hári, Lab kennsluvef og bókum er í kringum 150 þúsund króna og nýtist allt nema hárið út námstímann.

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði á hársnyrtibraut eru að hæfnieinkunn í íslensku og stærðfræði sé að lágmarki C+ við lok grunnskóla. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.

Skipting á annir

Hugmynd að skiptingu námsgreina á annir.

SKIPTING Á ANNIR - Hársnyrtiiðn 2026, fyrri hluti

Prentvæn útgáfa

PDF-skjal með útgáfu af Hársnyrtiiðn 2026 - fyrri hluti til að prenta út.

Prentvæn útgáfa - Hársnyrtiiðn 2026, fyrri hluti

ALMENNAR GREINAR                
Námsgrein Skst. 1. þrep 2. þrep
3. þrep 29 ein. 
Íslenska ÍSLE     2BR05       5
Stærðfræði STÆR     2AR05       5
Enska ENSK     2OS05       5
Lýðheilsa LÝÐH 1HF05           5
Inngangur að náttúruvísindum NÁTT 1GR05           5
Íþróttir ÍÞRÓ 1AL01 3 ein. val         4
SÉRGREINAR BRAUTAR                
Námsgrein Skst. 1. þrep 2. þrep
3. þrep 80 ein. 
Hármótun HMÓT 1HG04(AH)   2HG04(BH) 2HG04(CH)   3HG06(DH) 18
Hársnyrting

HSNY

1HG05(AH)   2HG04(BH) 2HG04(CH)   3HG06(DH)  18
Permanent HPEM 1HG04(AH)   2HG02(BH)     3HG02(CH)  8
Rakstur HRAK     2HG02(AH)       2
Iðnfræði háriðna IÐNF 1HG04(AH)   2HG04(BH) 2HG05(CH) 2HG05(DH)   18
Iðnteikning háriðna ITEI 1HG05(AH)   2HG05(BH)       10
Verkstæði faggreinar VSTÆ     2HG02(HN)       2
Starfskynning HSTA 1HG02(AH)   2HG02(BH)       4