ENSK2OS05 - Enska - Skilningur og orðaforði

Undanfari : ENSK1OS05 eða hæfnieinkunn C+ úr grunnskóla
Í boði : Alltaf

Lýsing

Áhersla er lögð á að nemendur öðlist aukna kunnáttu og færni í ensku. Þeir muna tileinka sér og nota nýjan orðaforða og þjálfast í að nota málið og tjá sig á skipulegan hátt. Áhersla er lögð á lestur texta til að byggja upp bæði virkan og óvirkan orðaforða og góðan skilning. Viðfangsefni eru: m. a. textalestur, orðaforði, ritun og málfræði.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
  • notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
  • lesskilningi sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja fjölbreytt mál
  • lesa fjölbreytta texta sér til gagns
  • beita málfari við hæfi í samskiptum
  • tjá sig skýrt og skipulega
  • skrifa fjölbreytt ritunarverkefni

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja fjölbreytt talað mál
  • tileinka og nýta sér efni fjölbreyttra ritaðra texta
  • lesa fjölbreytta texta og geta tjáð sig skriflega um efni þeirra
  • tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt
  • skrifa fjölbreytta texta eftir því sem hæfa tilefninu

Grunnþættir menntunar

Í enskukennslu eru grunnþættir menntunar samofnir námsefni og kennsluháttum. Læsi, tjáning og samvinna eru þungamiðja námsins þar sem nemendur þjálfa sig í að lesa, skrifa, hlusta og tala á ensku í fjölbreyttu samhengi. Sköpun og gagnrýnin hugsun eru hlutaðeigandi þegar nemendur túlka texta, mynda sér skoðanir og tjá sig á persónulegan hátt. Lýðræðisleg gildi og virðing fyrir fjölbreytileika birtast í umræðum um menningu, samfélag og manngildi í enskumælandi heimi. Stafrænt læsi og miðlamennt eru æfð í gegnum fjölbreyttar verkefnategundir og notkun á fjölbreyttum textategundum.