ENSK2OS05 - Enska - Skilningur og orðaforði
Undanfari : ENSK1OS05 eða hæfnieinkunn C+ úr grunnskóla
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Áhersla er lögð á að nemendur öðlist aukna kunnáttu og færni í ensku. Þeir muna tileinka sér og nota nýjan orðaforða og þjálfast í að nota málið og tjá sig á skipulegan hátt. Áhersla er lögð á lestur texta til að byggja upp bæði virkan og óvirkan orðaforða og góðan skilning. Viðfangsefni eru: m. a. textalestur, orðaforði, ritun og málfræði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
- notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
- lesskilningi sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja fjölbreytt mál
- lesa fjölbreytta texta sér til gagns
- beita málfari við hæfi í samskiptum
- tjá sig skýrt og skipulega
- skrifa fjölbreytt ritunarverkefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja fjölbreytt talað mál
- tileinka og nýta sér efni fjölbreyttra ritaðra texta
- lesa fjölbreytta texta og geta tjáð sig skriflega um efni þeirra
- tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt
- skrifa fjölbreytta texta eftir því sem hæfa tilefninu
Grunnþættir menntunar
Í enskukennslu eru grunnþættir menntunar samofnir námsefni og kennsluháttum. Læsi, tjáning og samvinna eru þungamiðja námsins þar sem nemendur þjálfa sig í að lesa, skrifa, hlusta og tala á ensku í fjölbreyttu samhengi. Sköpun og gagnrýnin hugsun eru hlutaðeigandi þegar nemendur túlka texta, mynda sér skoðanir og tjá sig á persónulegan hátt. Lýðræðisleg gildi og virðing fyrir fjölbreytileika birtast í umræðum um menningu, samfélag og manngildi í enskumælandi heimi. Stafrænt læsi og miðlamennt eru æfð í gegnum fjölbreyttar verkefnategundir og notkun á fjölbreyttum textategundum.