Til forráðamanna

Fjölbrautaskóli Suðurnesja vill gjarnan vera í góðu samstarfi við heimilin. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast vel með námi barna sinna og ungmenna og sýna því áhuga, en það skilar árangri.

Rannsóknir hafa sýnt að samstarf foreldra og skóla skiptir verulegu máli fyrir árangur nemenda í framhaldsskólum. Nemendur sem eiga vísan stuðning og hvatningu heima fyrir og í skóla gengur betur en nemendum sem ekki hafa stuðning.

Foreldrum er ávallt velkomið að hafa samband og leita upplýsinga um námið og skólann hjá nemendum sem eru yngri en 18 ára. Þegar nem­andi verður 18 ára lokast fyrir aðgang aðstand­enda að Innu. Nem­andinn getur hins vegar opnað hann aftur og veitt aðstand­endum áfram­hald­andi aðgang að Innu. Hafi nem­andi opnað fyrir aðgang aðstand­enda í Innu, geta þeir áfram skráð veik­indi nem­andans í Innu. 

Leiðbeiningar til nemenda til að veita foreldrum aðgang að INNU eftir 18 ára aldur:

    1. Skráðu þig inn á INNU og smelltu á myndina þína efst á stikunni og veldu svo „Ég”.
    2. Smelltu á Aðstandendur sem er neðst í valmyndinni.


    3. Settu í staðinn fyrir Nei í Aðgangur og þá hefur þú gefið aðstandendum aðgang að INNU. Aðstandendur geta nú skráð veikindi, séð einkunnir, fjarvistir og samskipti við kennara.