Próf í INNU
Nemendur hafa aðgang að eldri prófum í skólakerfinu INNU en þar er hægt að nálgast tvö síðustu próf í hverjum áfanga. Eins og áður geta þeir keypt ljósrit af eldra prófi en verða þá að sækja um það á skrifstofu skólans a.m.k. viku áður en próf er haldið í viðkomandi fagi. Greiða verður um leið og prófið er pantað, verð er 500 kr. á hvert próf.
- Til að skoða próf í INNU er best að fara í stundatöflu og velja áfanga.
- Þegar síða með áfanganum kemur upp er farið í Upplýsingar hægra megin á síðunni.
- Þá opnast gluggi og neðst í honum eru eldri próf í áfanganum.
- Athugið að hægt er að skoða tvö nýjustu próf í hverjum áfanga.
- Prófin eru á PDF-sniði.