- Iðnmeistaranám nær til náms í stjórnunar- og rekstrargreinum ásamt fagtengdu námi þar sem það á við.
- Námið miðar að því að gera nemendur hæfa til að reka fyrirtæki skv. 10. grein iðnaðarlaga nr. 42/1978 og vera færa um að sjá um leiðsögn og kennslu iðnnema í eigin iðngrein.
- Hver maður getur leyst til sín meistarabréf ef hann fullnægir skilyrðum 3. gr. laganna, hefur lokið sveinsprófi, unnið síðan undir stjórn meistara í iðngrein sinni eitt ár minnst og jafnframt lokið meistaraprófi í iðninni frá meistaraskóla.
- Meistarabréf veitir meistara leyfi til að reka þá iðngrein, er meistarabréf hans tekur til.
Inntökuskilyrði
Til að innritast á brautina þarf nemandi að hafa staðist sveinspróf í einhverri af eftirfarandi iðngreinum: bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun, blikksmíði, bókbandi, flugvirkjun, grafískri miðlun, gull -og silfursmíði, hársnyrtiiðn, húsasmíði, húsgagnabólstrun, húsgagnasmíði, kjólasaum, klæðskurði, ljósmyndun, málaraiðn, múriðn, netagerð, pípulögnum, prentun, rafvirkjun, rennismíði, skósmíði, skrúðgarðyrkju, snyrtifræði, stálsmíði, söðlasmíði, tannsmíði, úrsmíði og veggfóðrun vélvirkjun og dúkalögn.
Skipulag náms
- Náminu er skipt í tvo hluta, A og B, í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja auk kennslu og leiðsagnar.
- Í B-hluta eru einnig fög tengd fyrirtækjum og rekstri auk fagtengds efnis greinar þar sem við á.
- Námið fer fram eftir frekara skipulagi hvers skóla ýmist með dreifnámi/fjarnámi eða staðbundnum lotum.
- Námið hefur námslok á fjórða hæfniþrepi íslensks hæfniramma um menntun.
- A- og B-hluti eru 38 einingar. Þess utan þurfa vélvirkjar, stálsmiðir og rennismiðir að taka 8 einingar í vali í faggrein.
Hæfniviðmið
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að...
- stofna og reka fyrirtæki í íslensku atvinnulífi í samræmi við lög og reglur.
- greina markaðsaðstæður og meta stöðu fyrirtækja út frá þeim.
- þekkja rekstrarumhverfi á Íslandi og tengingu þess við faggrein sína.
- stjórna starfsfólki og starfsmannahaldi.
- þróa og útbúa gæðahandbók fyrir fyrirtæki/verk.
- gera áhættugreiningu, áhættumat og öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustað.
- tileinka sér og nýta þær rannsóknir og nýjungar sem tilheyra rekstri í greininni.
- annast skipulagningu náms og þjálfun nemenda í sinni grein eftir þeim lögum, reglugerðum og námskröfum sem gerðar eru hverju sinni.
- stjórna framleiðslu- og framkvæmdum, greina og skipuleggja öryggis- og umhverfismál, skipuleggja vinnustaði og stjórnunar- og framleiðsluferla.
Námsmat
- Nemendur þurfa að ljúka hverjum áfanga fyrir sig með einkunninni 5 að lágmarki.
- Nemendur þurfa að hafa lokið eða vera að ljúka öllum fögum A-hluta áður en byrjað er á B-hluta.
- Áfanginn Grunnur að gæðahandbók skal tekinn á fyrstu önn og lokaverkefni hvers hluta er unnið samhliða öðrum fögum hlutans.
- Nemendur velja mismunandi pakka eftir starfsnámi.