MMAN4MS02(AA) - Meistaranám - Mannauðsstjórnun

Undanfari : Sveinspróf
Í boði : Haust

Lýsing

Fjallað er um mannauðsstjórnun í víðu samhengi, auglýsingar, viðtöl og ráðningu starfsfólks, nýliðafræðslu, starfsmannaveltu, frammistöðumat, hvatningu starfsfólks, endurgjöf, deilustjórnun o.fl. Kynntar eru nokkrar nýlegri nálganir og verkfæri við stjórnun mannauðsmála Farið er yfir lagaleg réttindi og reglur um skyldur atvinnurekenda gagnvart starfsfólki m.a. lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (sem oft kallast vinnuverndarlögin) og vinnulöggjöfina. Enn fremur er fjallað um aðila vinnumarkaðarins ásamt eðli og mikilvægi kjarasamninga. Gert er ráð fyrir að í lok áfangans geti nemendur tjáð sig í ræðu og riti um helstu kenningar. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • lögum og reglum um réttindi og skyldur atvinnurekenda gagnvart starfsfólki
  • réttindum og skyldum aðila í ráðningarsambandi
  • þáttum almennra stjórnunarstarfa sem lúta að stjórnun mannauðs
  • stefnumótunarhlutverki mannauðsstjórnunar og þeim möguleikum sem í því hlutverki felast fyrir samkeppnishæfni fyrirtækja
  • helstu hagsmunasamtökum launþega og atvinnurekenda 


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • útbúa ráðningarsamninga
  • beita helstu þáttum mannauðsstjórnunar við mismunandi aðstæður
  • nota starfsmannasamtöl til þróunarstarfs og umbóta
  • forma starfsmannaauglýsingar
  • vinna áætlun um öryggi og heilbrigði fyrir skrifstofuvinnu


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita mannauðsstjórnun í árangursríkum rekstri
  • umbuna, hvetja, hrósa og meta frammistöðu starfsfólks í sinni grein
  • taka þátt í umræðum og skoðanaskiptum með starfsfólki fyrirtækisins
  • beita áætlun um öryggi og heilbrigði til vinnuverndar á skrifstofu 

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.