Lýsing
Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.
Áfanginn byggist aðallega á stöðlum um raflagnir innanhúss og um útboð. ÍST 30:2012 og ÍST 150:2009. Fjallað er um útboðsreglur og verkáætlanir. Farið er yfir verklýsingar og rýnt í kröfur þeirra. Nemendur auka við þekkingu sína á teikningum, teikningalestri og meðferð teikninga og annarra vinnugagna. Nemendur læra að gera verkáætlanir, verðútreikninga og tilboð byggð á ákvæðisvinnuverðskrá, útboðsgögnum og öðrum gögnum. Þá vinna nemendur verkefni sem innihalda vinnu- og efnisáætlanir og tilboðsgerð. Farið í myndun útseldrar vinnu, teknir fyrir liðir sem hún þarf að innifela, bæði skattar og launatengd gjöld og annar kostnaður sem til fellur, og fyrirtækið eða meistarinn þarf að velta. Fylla inn í magnskrá við tilboðsgerð þar sem gert er ráð fyrir öllum þessum liðum. Þá er farið í helstu staðla og lög sem þessu tengjast. Fjallað um lagnaleiðir í mannvirkjum ásamt þeim atriðum sem ber að varast vegna hefðbundinna starfa rafiðnaðarmanna í byggingum er snúa m.a að umfangi bygginga og brunatæknilegum þáttum þeirra. Þá er fjallað um hina ýmsu ljósgjafa og tengingu þeirra og nemendur bæta þekkingu sína í lýsingartækni. Farið er m.a yfir helstu viðfangsefni lýsingarfræðinnar svo sem hugtökin og fræðin á bak við litarhitastig, litarendurgjöf, ljósmagn, glýju og ljóstækni verða rædd og áhersla verður lögð á að sýna hvernig LED ljósgjafinn hefur breytt hvernig hönnuðir, verktakar og framleiðendur vinna með ljósgjafa. Gömlu hefðbundnu ljósgjafarnir bornir saman við LED og farið í praktísk atriði eins og skynjun á ljósi í rými, efnisnotkun og endurkast. Hverju þarf að huga að þegar lýsing er hönnuð í ákveðin rými og hvað þarf að hafa í huga við sölu og uppsetningu ljósbúnaðar Í náminu er öryggisstjórnunarkerfi rafverktaka kynnt. Einnig er fjallað um ákvæði Byggingareglugerðar sem snúa að störfum rafiðnaðarmanna og helstu staðla.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- útboðsreglum
- reglum um raflagnir bygginga
- reglum um raflagnateikningar og teikningalestur
- ákvæðisverðskrá rafiðna
- skipulagi verka og verkáætlunum
- tilboðsgerð og efnisáætlunum
- verðmyndun vinnu- og efnisliða
- helstu atriðum lýsingartækni
- hinum ýmsu ljósgjöfum
- stöðlum og handbókum um uppbyggingu lág- og smáspennukerfa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meðhöndla og nýta raflagnateikningar
- beita þekkingu sinni í teikningalestri
- nýta verðskrár og verkáætlanir við útboðsgerð
- þekkja hina ýmsu ljósgjafa og tengingar þeirra
- velja og nýta hina ýmsu ljósgjafa
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa teikningar
- vinna verkefni sem innhalda vinnu- og efnisáætlanir
- gera verkáætlanir, verðútreikninga og tilboð byggð á ákvæðisvinnuskrá, útboðsgögnum og öðrum gögnum
- gera tilboð og sýna frumkvæði og innsæi við gerð efnisáætlana og tilboða
- velja og tengja hina ýmsu ljósgjafa og rafbúnað
- geta nýtt sér þekkingu sína og leikni á gagnrýnin og uppbyggilegan hátt
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.