MÖRY4BB02(BA) - Meistaranám - Öryggisfræði, brunaviðvörunarkerfi og brunaþéttingar
Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun
Í boði
: Haust
Lýsing
Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.
Í áfanganum læra nemendur um hina ýmsu íhluti brunaviðvörunarkerfa, eiginleika þeirra, notkunarsvið, lagnir og tengingar. Þá er fjallað um öryggis- og brunafræði, reglur um brunaviðvörunarkerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi slíkra kerfa. Fylgt er reglugerð um brunavarnir, einnig læra nemendur skil á brunahólfun mannvirkja, hinum ýmsu gerðum brunaþéttinga, eiginleikum þeirra, notkunarsviði og helstu reglum þar um.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- brunaviðvörunarkerfum og hinum ýmsu íhlutum þeirra
- eiginleikum brunaviðvörunarkerfa, notkunarsviði, lögnum og tengingum
- reglum um uppsetningu og viðhald brunaviðvörunarkerfa
- grundvallaruppbyggingu, eiginleikum og hlutverki einstakra íhluta brunaviðvörunarkerfa
- helstu brunahólfum mannvirkja, hinum ýmsu gerðum brunaþéttinga, eiginleikum þeirra, notkunarsviði
- reglum um brunahólf mannvirkja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja upp brunaviðvörunarkerfi
- halda við brunaviðvörunarkerfum
- nota hina ýmsu íhluti brunaviðvörunarkerfa
- fylgja reglum um öryggis- og brunafræði
- fylgja reglum um brunahólf mannvirkja
- leggja brunaþéttingar milli brunahólfa í byggingum
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta tileinkað sér nýjungar í brunaviðvörunum
- setja upp, halda við, stilla og prófa rásaskipt brunaviðvörunarkerfi
- tjá sig um og leiðbeina öðrum um brunaviðvörunarkerfi og íhluti þeirra
- nýta sérhæfða þekkingu sína til að setja upp og halda við rásaskiptum brunaviðvörunarkerfum
- bera ábyrgð á brunaþéttingum með lögnum sem hann leggur milli brunahólfa í byggingum
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við brunaviðvörunarkerfi
- geta nýtt sér þekkingu sína og leikni tengda öryggis- og brunakerfum
- ljúka prófi sem veitir heimild til að setja upp og sjá um viðhald á rásaskiptum brunaviðvörunarkerfum
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.