MÖRY4BB02(BA) - Meistaranám - Öryggisfræði, brunaviðvörunarkerfi og brunaþéttingar

Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun
Í boði : Haust

Lýsing

Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.

Í áfanganum læra nemendur um hina ýmsu íhluti brunaviðvörunarkerfa, eiginleika þeirra, notkunarsvið, lagnir og tengingar. Þá er fjallað um öryggis- og brunafræði, reglur um brunaviðvörunarkerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi slíkra kerfa. Fylgt er reglugerð um brunavarnir, einnig læra nemendur skil á brunahólfun mannvirkja, hinum ýmsu gerðum brunaþéttinga, eiginleikum þeirra, notkunarsviði og helstu reglum þar um.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • brunaviðvörunarkerfum og hinum ýmsu íhlutum þeirra
  • eiginleikum brunaviðvörunarkerfa, notkunarsviði, lögnum og tengingum
  • reglum um uppsetningu og viðhald brunaviðvörunarkerfa
  • grundvallaruppbyggingu, eiginleikum og hlutverki einstakra íhluta brunaviðvörunarkerfa
  • helstu brunahólfum mannvirkja, hinum ýmsu gerðum brunaþéttinga, eiginleikum þeirra, notkunarsviði
  • reglum um brunahólf mannvirkja


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja upp brunaviðvörunarkerfi
  • halda við brunaviðvörunarkerfum
  • nota hina ýmsu íhluti brunaviðvörunarkerfa
  • fylgja reglum um öryggis- og brunafræði
  • fylgja reglum um brunahólf mannvirkja
  • leggja brunaþéttingar milli brunahólfa í byggingum


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta tileinkað sér nýjungar í brunaviðvörunum
  • setja upp, halda við, stilla og prófa rásaskipt brunaviðvörunarkerfi
  • tjá sig um og leiðbeina öðrum um brunaviðvörunarkerfi og íhluti þeirra
  • nýta sérhæfða þekkingu sína til að setja upp og halda við rásaskiptum brunaviðvörunarkerfum
  • bera ábyrgð á brunaþéttingum með lögnum sem hann leggur milli brunahólfa í byggingum
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við brunaviðvörunarkerfi
  • geta nýtt sér þekkingu sína og leikni tengda öryggis- og brunakerfum
  • ljúka prófi sem veitir heimild til að setja upp og sjá um viðhald á rásaskiptum brunaviðvörunarkerfum

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.