MJAR4MS01(BA) - Meistaranám - Spennujafnanir og jarðtengingar lágspennu og smáspennukerfa
Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun
Í boði
: Haust
Lýsing
Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.
Í áfanganum er fjallað um uppbyggingu jarðtengikerfa og þýðingu þeirra við truflanavarnir í lág- og smáspennukerfum. Farið er yfir helstu atriði við jarðtengingar smáspennukerfa í byggingum og vinnubrögð við uppbyggingu þeirra, efnisval og áhrif þess á jarðtengingar og truflanir. Þá er farið yfir ástæður truflana og varnir gegn þeim, m.a. flökkustrauma. Kynnt er innihald nokkurra staðla og handbóka varðandi uppbyggingu lág- og smáspennukerfa.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- spennujöfnun
- uppbyggingu jarðtengikerfa og flökkustrauma
- þörf fyrir sökkulskaut og tengingar við byggingahluta
- varnartengingar stálgrindarhúsa
- varnartengingar í sérstökum rýmum bygginga
- mikilvægi jarðtengikerfa og þýðingu þeirra við truflanavarnir
- helstu atriðum við jarðtengingar í byggingum
- stöðlum og handbókum um uppbyggingu lág- og smáspennukerfa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- fylgja stöðlum og handbókum er varða uppbyggingu lág- og smáspennukerfa
- setja upp jarðtengikerfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig um og leiðbeina öðrum um uppbyggingu lág- og smáspennukerfa og jarðtengingar
- nýta sérhæfða þekkingu sína til að leiðbeina öðrum um spennujafnanir og jarðtengingar í lág- og smáspennukerfum
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við jarðtengikerfi og uppbyggingu lág- og smáspennukerfa
- geta nýtt sér þekkingu sína og leikni tengda námsefninu
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.