MKEN4MS05(AA) - Meistaranám - Kennsla og leiðsögn

Undanfari : Sveinspróf
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandi þekki námskröfur og uppbyggingu náms til sveinsprófs í iðngrein sinni og viti hvernig skóli og fyrirtæki þurfa að vinna saman að menntun einstaklingsins. Þekki réttindi og skyldur iðnmeistara og iðnnema á náms- og starfsþjálfunarsamningi. Viti hvernig meistari geti búið iðnnema æskileg skilyrði til náms og þroska á samningstíma og kunni aðferðir til að miðla þekkingu og annast handleiðslu í samræmi við námsþarfir nemans og námskröfur iðngreinarinnar. Þekki helstu aðferðir kennslufræði og námsmats og geti skipulagt endurmenntun í samræmi við þarfir fyrirtækis. Hafi þekkingu á ákvæðum laga og reglugerða er varða iðnmenntun á Íslandi.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ákvæðum laga og reglugerða er varða iðnmenntun á Íslandi
  • algengum aðferðum við fræðslu og þjálfun ólíkra einstaklinga
  • helstu kenningum um nám, kennslu og félagsleg samskipti
  • helstu aðferðum við mat á árangri þjálfunar og frammistöðu í starfi
  • námskröfum og uppbyggingu náms til sveinsprófs í iðngrein sinni samkvæmt aðalnámskrá
  • ákvæðum iðnnámssamninga um réttindi og skyldur iðnmeistara og iðnnema
  • kennslu, leiðsögn og námskröfum á fagsviði sínu
  • helstu sí- og endurmenntunarstofnunum á Íslandi 


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja fram einföld markmið fyrir tiltekinn þjálfunarþátt í iðngrein sinni
  • velja viðeigandi aðferðir við þjálfun og mat á frammistöðu
  • skipuleggja afmarkað þjálfunarferli
  • greina færnikröfur starfa og einstakra verkþátta í iðngrein sinni
  • velja viðeigandi aðferðir við leiðsögn og mat og beita þeim aðferðum
  • skrá frammistöðu iðnnema á skipulegan hátt
  • meta þekkingarþörf fyrirtækis og þekkingu starfsmanna 


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skipuleggja kennslu og leiðsögn iðnnema og nýrra starfsmanna á vinnustað
  • meta námsþarfir iðnnema með hliðsjón af aðalnámskrá og að gera heildstæða þjálfunaráætlun
  • leiðbeina og meta frammistöðu og framfarir iðnnema og nýrra starfsmanna með ólíkum aðferðum
  • útskýra og rökstyðja þjálfunaráætlanir og val aðferða við kennslu, leiðsögn og mat
  • meta einstaklingsmun iðnnema og annarra samstarfsmanna og koma fram við þá af virðingu og nærgætni
  • nota hvatningu, endurgjöf og hrós í leiðsögn og kennslu
  • ígrunda og meta eigið framlag við skipulagningu, framkvæmd og mat á þjálfun annarra og endurskoða áætlanir og aðferðir ef þörf er á
  • gera endurmenntunaráætlun sem byggir á þekkingargreiningu fyrirtækis og starfsmanna

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.