MKEN4MS05(AA) - Meistaranám - Kennsla og leiðsögn
Undanfari : Sveinspróf
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemandi þekki námskröfur og uppbyggingu náms til sveinsprófs í iðngrein sinni og viti hvernig skóli og fyrirtæki þurfa að vinna saman að menntun einstaklingsins. Þekki réttindi og skyldur iðnmeistara og iðnnema á náms- og starfsþjálfunarsamningi. Viti hvernig meistari geti búið iðnnema æskileg skilyrði til náms og þroska á samningstíma og kunni aðferðir til að miðla þekkingu og annast handleiðslu í samræmi við námsþarfir nemans og námskröfur iðngreinarinnar. Þekki helstu aðferðir kennslufræði og námsmats og geti skipulagt endurmenntun í samræmi við þarfir fyrirtækis. Hafi þekkingu á ákvæðum laga og reglugerða er varða iðnmenntun á Íslandi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ákvæðum laga og reglugerða er varða iðnmenntun á Íslandi
- algengum aðferðum við fræðslu og þjálfun ólíkra einstaklinga
- helstu kenningum um nám, kennslu og félagsleg samskipti
- helstu aðferðum við mat á árangri þjálfunar og frammistöðu í starfi
- námskröfum og uppbyggingu náms til sveinsprófs í iðngrein sinni samkvæmt aðalnámskrá
- ákvæðum iðnnámssamninga um réttindi og skyldur iðnmeistara og iðnnema
- kennslu, leiðsögn og námskröfum á fagsviði sínu
- helstu sí- og endurmenntunarstofnunum á Íslandi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja fram einföld markmið fyrir tiltekinn þjálfunarþátt í iðngrein sinni
- velja viðeigandi aðferðir við þjálfun og mat á frammistöðu
- skipuleggja afmarkað þjálfunarferli
- greina færnikröfur starfa og einstakra verkþátta í iðngrein sinni
- velja viðeigandi aðferðir við leiðsögn og mat og beita þeim aðferðum
- skrá frammistöðu iðnnema á skipulegan hátt
- meta þekkingarþörf fyrirtækis og þekkingu starfsmanna
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja kennslu og leiðsögn iðnnema og nýrra starfsmanna á vinnustað
- meta námsþarfir iðnnema með hliðsjón af aðalnámskrá og að gera heildstæða þjálfunaráætlun
- leiðbeina og meta frammistöðu og framfarir iðnnema og nýrra starfsmanna með ólíkum aðferðum
- útskýra og rökstyðja þjálfunaráætlanir og val aðferða við kennslu, leiðsögn og mat
- meta einstaklingsmun iðnnema og annarra samstarfsmanna og koma fram við þá af virðingu og nærgætni
- nota hvatningu, endurgjöf og hrós í leiðsögn og kennslu
- ígrunda og meta eigið framlag við skipulagningu, framkvæmd og mat á þjálfun annarra og endurskoða áætlanir og aðferðir ef þörf er á
- gera endurmenntunaráætlun sem byggir á þekkingargreiningu fyrirtækis og starfsmanna
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.