MVST4MS02AA - Meistaranám - Verkefnastjórnun
Undanfari : Sveinspróf
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum skal tengja verkefni við raunverulegar aðstæður. Farið er yfir helstu kenningar á sviði verkefnastjórnunar, skilgreiningu verkefna, verkþáttagreiningu, áætlanagerð, framkvæmd og verkskil. Kennslan miðar að því að nemandi öðlist góðan skilning á helstu aðferðum verkefnastjórnunar. Kynning og rökstuðningur úrlausna við lok verkefna er hluti af náminu. Aðferðir og verkfæri til umbótastarfa. Greiningar á vandamálum, úrvinnsla að rótum vandamála og samanburður eftir úrbætur. Nemendur vinna í hópum að skipulagningu verkefna, að eigin vali, með þekktum aðferðum verkefnastjórnunar. Lögð er áhersla á skýra tengingu við þær aðferðir og aðstæður sem til staðar eru á atvinnumarkaði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- aðferðum í verkefnastjórnun og helstu kenningum sem þær byggja á
- helstu ytri þáttum sem hafa áhrif á verkefnastjórnun í íslenskum iðnaði
- grunnatriðum verkefnastjórnunar og meginhlutverki verkefnastjórans
- fundarsköpum
- vöruþróun
- helstu kynningaraðferðum
- verkfærum og helstu aðferðum verkefnastjórnunar til umbótastarfs
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina mismunandi aðferðir í verkefnastjórnun
- miðla þekkingu sinni með kynningum og umræðum
- skipuleggja og stýra minni verkefnum á fagsviði sínu
- skilgreina ferli fyrir vöruþróun
- kynna verkefni við verklok
- beita verkfærum verkefnastjórnunar við umbótastarf
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita mismunandi aðferðum verkefnastjórnunar við stjórnun verkefna, greina mikilvægi verkefnastjórnunar og eigin hæfni til að sinna hlutverki verkefnastjóra
- beita þekkingu sinni á sviði verkefnastjórnunar á raunveruleg dæmi
- taka þátt í umræðum og skoðanaskiptum um verkefnastjórnun almennt
- meta hvaða aðferðir henta hverju sinni í vöruþróun
- finna og leysa vandamál og frábrigði með aðferðafræði verkefnastjórnunar
- kynna og rökstyðja úrlausnir verkefnis við verklok
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.