MVST4MS02AA - Meistaranám - Verkefnastjórnun

Undanfari : Sveinspróf
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum skal tengja verkefni við raunverulegar aðstæður. Farið er yfir helstu kenningar á sviði verkefnastjórnunar, skilgreiningu verkefna, verkþáttagreiningu, áætlanagerð, framkvæmd og verkskil. Kennslan miðar að því að nemandi öðlist góðan skilning á helstu aðferðum verkefnastjórnunar. Kynning og rökstuðningur úrlausna við lok verkefna er hluti af náminu. Aðferðir og verkfæri til umbótastarfa. Greiningar á vandamálum, úrvinnsla að rótum vandamála og samanburður eftir úrbætur. Nemendur vinna í hópum að skipulagningu verkefna, að eigin vali, með þekktum aðferðum verkefnastjórnunar. Lögð er áhersla á skýra tengingu við þær aðferðir og aðstæður sem til staðar eru á atvinnumarkaði. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • aðferðum í verkefnastjórnun og helstu kenningum sem þær byggja á
  • helstu ytri þáttum sem hafa áhrif á verkefnastjórnun í íslenskum iðnaði
  • grunnatriðum verkefnastjórnunar og meginhlutverki verkefnastjórans
  • fundarsköpum
  • vöruþróun
  • helstu kynningaraðferðum
  • verkfærum og helstu aðferðum verkefnastjórnunar til umbótastarfs 


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina mismunandi aðferðir í verkefnastjórnun
  • miðla þekkingu sinni með kynningum og umræðum
  • skipuleggja og stýra minni verkefnum á fagsviði sínu
  • skilgreina ferli fyrir vöruþróun
  • kynna verkefni við verklok
  • beita verkfærum verkefnastjórnunar við umbótastarf 


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita mismunandi aðferðum verkefnastjórnunar við stjórnun verkefna, greina mikilvægi verkefnastjórnunar og eigin hæfni til að sinna hlutverki verkefnastjóra
  • beita þekkingu sinni á sviði verkefnastjórnunar á raunveruleg dæmi
  • taka þátt í umræðum og skoðanaskiptum um verkefnastjórnun almennt
  • meta hvaða aðferðir henta hverju sinni í vöruþróun
  • finna og leysa vandamál og frábrigði með aðferðafræði verkefnastjórnunar
  • kynna og rökstyðja úrlausnir verkefnis við verklok

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.