MBIL4MS01(BA) - Meistaranám - Bilanaleit

Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun
Í boði : Haust

Lýsing

Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.

Viðfangsefni áfangans er bilanaleit í hefðbundnum raflögnum, rafbúnaði og rafvélum. Nemendur kynnast hinum ýmsu kerfisbundnu aðferðum sem notaðar eru við bilanaleit, læra að meta þær, velja og beita verkfærum við greininguna og tryggja gæði vinnunnar. Við námið er notaður búnaður til eftirlíkinga bilana og unnin verkefni til lausnar þeim.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • bilanaleit í raflögnum, loftstýringum, vélbúnaði og jaðarbúnaði s.s. skynjurum
  • helstu aðferðum sem beitt er við bilanaleit
  • helstu verkfærum sem notuð eru til að greina bilanir
  • hvernig tryggja á að reglum um öryggi og gæði sé fylgt við bilanaleit
  • hvernig á að greina og bregðast við raunverulegum bilunum í raflögnum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina bilanir í raflögnum, loftstýringum, vélbúnaði og jaðarbúnaði s.s. skynjurum
  • velja þær aðferðir sem henta við bilanaleit hverju sinni
  • beita kerfisbundnum aðferðum við bilanaleit
  • nýta þau verkfæri sem notuð eru til að greina bilanir
  • tryggja að reglum um öryggi og gæði sé fylgt við bilanaleit
  • nýta þekkingu sína til að leysa tæknileg vandamál sem tengjast loftnetskerfum


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hagnýta þekkingu sína við bilanaleit
  • tjá sig um og leiðbeina öðrum um bilanaleit í raflögnum, loftstýringum, vélbúnaði og jaðarbúnaði s.s. skynjurum
  • nýta sérhæfða þekkingu sína við bilanagreiningu í raflögnum, loftstýringum og vélum
  • sýna frumkvæði og innsæi við bilanaleit í raflögnum, loftstýringum og vélum
  • tryggja öryggi þegar unnið er við bilanaleit
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem tengjast bilanagreiningu
  • geta nýtt sér þekkingu sína og leikni á gagnrýninn og uppbyggilegan hátt

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.