MLÖR4MS02(BA) - Meistaranám - Sértæk lög og reglugerðir
Undanfari : A-hluti iðnmeistaranáms
Í boði
: Haust
Lýsing
Gefið verður gott yfirlit yfir stjórnsýslu mannvirkjamála, byggingarleyfisskyldar framkvæmdir og eftirlit með mannvirkjagerð og fagaðilum í mannvirkjagerð. Nemendur fá kynningu á lögum um mannvirki, byggingarreglugerð, úrræðum byggingarfulltrúa og úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Fjallað er um ábyrgð iðnmeistara, byggingastjóra og annarra fagaðila í mannvirkjagerð, hvert hlutverk þeirra er gagnvart eiganda mannvirkis og skyldur þeirra varðandi val á byggingavörum. Einnig verður tilgangur og grundvöllur CE-merkingar og yfirlýsingar um nothæfi skýrður. Þá er farið lauslega yfir þau lög, reglugerðir og staðla sem gilda um skipulag og grenndarkynningu, útboð og opinber innkaup, verktakasamninga, umhverfismál og vinnuvernd.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lögum um mannvirki, byggingarreglugerð og leiðbeiningum
- stjórnsýslu mannvirkjamála og eftirliti með mannvirkjagerð
- skoðunarhandbók og skoðunarlistum
- ábyrgð iðnmeistara og byggingarstjóra
- lagaumhverfi mannvirkjagerðar, þ.m.t. skipulags-, umhverfis- og vinnuverndarmála
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina byggingarleyfisskyldar framkvæmdir
- fletta upp í lögum um mannvirki og byggingarreglugerð
- nota skoðunarlista og leiðbeiningar með byggingarreglugerð sér til gagns
- lesa og skilja nothæfisyfirlýsingar með byggingarvörum
- afla sér eða leita að upplýsingum þegar á þarf að halda um umhverfiskröfur, vinnuverndarkröfur, skipulag
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- rækja skyldur gagnvart eiganda og uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til iðnmeistara í lögum um mannvirki, byggingarreglugerð sem og öðrum lögum og reglum um mannvirkjagerð
- vera meðvitaður um ábyrgð sína sem iðnmeistari og þær afleiðingar sem slæm vinnubrögð eða lélegt innra eftirlit getur haft
- fylgjast með breytingum á lögum eða reglugerðum sem hafa áhrif á starf þeirra eða ábyrgð
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.