MSTY4IT03(BA) - Meistaranám - Stýringar, iðntölvur 1

Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun
Í boði : Haust

Lýsing

Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.

Í áfanganum er byggt ofaná þá þekkingu á iðntölvum og búnaði sem nemendur hafa öðlast. Viðfangsefnin eru gerð flæðirita við lausn stýriverkefna og færslu flæðirita í forrit. Þá er fjallað um stöðluð hliðræn merki og forritun þeirra, farið í reikniaðgerðir og forritun í tvíundarorðum. Flæðirit og forrit eru gerð eftir lýsingum, slegin inn og prófuð í iðntölvum tengdum hermum. Einnig eru gerð flæðirit og forrit þar sem fram koma bæði stafræn og hliðræn merki og þau prófuð í iðntölvum tengdum hermum.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • PLC stýringum
  • iðntölvum og búnaði þeim tengdum
  • notkun flæðirita
  • færslu flæðirita í forrit
  • aðferðum við prófun flæðirita
  • stöðluðum hliðrænum merkjum og forritun þeirra
  • prófun stafrænna og hliðrænna merkja


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita kerfisbundnum aðferðum við lausn stýriverkefna
  • nota og gera flæðirit
  • færa flæðirit í forrit
  • hanna og forrita smærri PLC stýringar
  • prófa forrit
  • forrita flóknari verkefni þar sem blandað er saman stafrænum og hliðrænum merkjum


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hagnýta þekkingu sína til að gera flæðirit til að leysa stýriverkefni
  • og forrit þar sem fram koma bæði stafræn og hliðræn merki
  • nýta sérhæfða þekkingu sína til að gera flæðirit og forrit
  • hagnýta sér prófanir í iðntölvum tengdum hermum
  • geta nýtt sér þekkingu sína og leikni á gagnrýnin og uppbyggilegan hátt

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.