MLÖR4MS02(AA) - Meistaranám - Almenn lögfræði
Undanfari : Sveinspróf
Í boði
: Haust
Lýsing
Farið er yfir helstu lög og reglugerðir er varða iðnrekstur og starfsumhverfi iðnarins. Nemendur eru kynntir fyrir lögum sem tengjast samningagerð, vöru- og þjónustukaupum, rekstrarformi fyrirtækja, sköttum og skyldum, vinnumarkaðs- og ráðningarmálum, samkeppni og viðskiptaháttum, skaðabótum og rekstrarlokum. Nemendur eiga að þekkja leiðir til að leita sér nánari upplýsinga um lögfræðileg atriði er tengjast þeirra eigin rekstri. Sömuleiðis verður farið yfir samfélagslega ábyrgð í fyrirtækjarekstri. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur geti yfirfært samfélagslega ábyrgð yfir á eigin rekstur og eigið starfsumhverfi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu lögum og reglum varðandi starfsmannamál
- helstu lögum og reglum er varða rekstur eigin fyrirtækja og skattalegt umhverfi þeirra
- helstu lögum varðandi tilboðs- og samningagerð
- samfélagslega ábyrgð í eigin rekstrarumhverfi
- lögboðnum tryggingum í atvinnurekstri
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja og geta metið áhrif helstu laga og reglugerða á eigið rekstrarumhverfi
- þekkja helstu samninga varðandi atvinnurekstur
- meta hvernig megi yfirfæra samfélagslega ábyrgð yfir á eigin fyrirtækjarekstur
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leita sér upplýsinga um lögfræðileg atriði er varða fyrirtækjarekstur
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.