MGHA4MS02(BA) - Meistaranám - Gæðastýringaráætlun

Undanfari : MGHA4MS02AA og MLOK4MS02AA
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandi skilgreinir þá ferla sem þörf er á við framleiðslu á ákveðinni vöru eða veitingu á þjónustu, stjórnunar- og verkferla, verklagsreglur og stjórnunarlegar vinnuleiðbeiningar frá aðkomu verkkaupa til afhendingar á vöru fyrir eigið fyrirtæki og rýna kröfur sem eiga við þau ferli. Nemandi ákvarðar og skilgreinir hvað þarfnast stýringa vegna gæða-, öryggis- og umhverfismála og ákvarðar hvernig stýringu er beitt (hvaða mælingar eða eftirlit og hvernig búnað þarf). Auk þess að ákvarða tíðni, ábyrgð og setja upp viðeigandi gátlista og eftirlitsblöð og ákvarða viðbrögð við frávikum á tilgreindum eftirlitsstöðum. Nemandi skipuleggi framleiðslusvæði og raði búnaði með skilgreindum og rökstuddum aðferðum. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • kröfum til iðnmeistara í mannvirkjagerð, málmiðnaði og bílgreinum
  • kröfum til gæðakerfis iðnmeistara í mannvirkjagerð, málmiðnaði og bílgreinum
  • úttektum á gæðakerfum skv. mannvirkjagerð, málmiðnaði og bílgreinum
  • skilgreiningu ferla, kröfum til ferla og uppbyggingu gæðastýringar á ferlum/verkum
  • kröfum ISO 9001 og IATF 16949 til framleiðslustýringar stöðugleika ferla, áhættustjórnun og galla forvarnir í framleiðslu
  • CE- vottun og kröfum til byrgja og íhluta 


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja fram ferli vegna verka tengdum mannvirkjagerð, málmiðnaði og bílgreinum
  • ákvarða stýringar og gera eftirlitsáætlun framkvæmda og verkefna
  • skipuleggja gagnavistun skv. stöðlum 


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • setja fram ferli fyrir verkefni í mannvirkjagerð, málmiðnaði og bílgreinum með nauðsynlegum stýringum

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.