ENSK2OS05 - Enska - Skilningur og orðaforði
							
																																
	
	
													
											
							Undanfari : ENSK1OS05 eða hæfnieinkunn B úr grunnskóla
						
																
							Í boði
							: Alltaf
						
														 
					
		
					
				Lýsing
				Áhersla er lögð á að nemendur öðlist aukna kunnáttu og færni í ensku. Þeir muna tileinka sér og nota nýjan orðaforða og þjálfast í að nota málið og tjá sig á skipulegan hátt. Áhersla er lögð á lestur texta til að byggja upp bæði virkan og óvirkan orðaforða og góðan skilning. Viðfangsefni eru: m. a. textalestur, orðaforði, ritun og málfræði
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
 
- notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
 
- lesskilningi sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
 
 
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja fjölbreytt mál
 
- lesa fjölbreytta texta sér til gagns
 
- beita málfari við hæfi í samskiptum
 
- tjá sig skýrt og skipulega
 
- skrifa fjölbreytt ritunarverkefni
 
 
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja fjölbreytt talað mál
 
- tileinka og nýta sér efni fjölbreyttra ritaðra texta
 
- lesa fjölbreytta texta og geta tjáð sig skriflega um efni þeirra
 
- tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt
 
- skrifa fjölbreytta texta eftir því sem hæfa tilefninu