Lýsing
Áfanginn er kynning á sálfræði, nokkrum helstu undirgreinum hennar og aðferðum sálfræðinnar. Setja skal efni og aðferðir í samhengi við nútíma samfélag bæði það sem er að gerast innan sálfræðinnar og sýna hvernig sálfræðin kemur daglegu lífi við. Undirgreinar sem kynna má eru hugfræði, atferlisfræði, lífeðlisleg sálfræði, persónuleikasálfræði, félagssálfræði, þroskasálfræði, afbrigðasálfræði, dularsálfræði, tilraunasálfræði. Nemendur skulu kynnast fræðilegum og hagnýtum aðferðum sálfræðinnar; aðferðum við rannsóknir, skrifum og birtingu rannsóknarskýrslna, sálfræðimeðferð og –ráðgjöf og hvernig einstaklingur getur beitt aðferðum sálfræðinnar fyrir sjálfan sig
Þekkingarviðmið
- á nokkrum helstu nútíma kenningum og hugtökum í sálfræði
Leikniviðmið
- lesa sálfræðitexta
- ræða sálfræði
- beita aðferðafræði sálfræðinnar
- bera saman hugtök og kenningar
Hæfnisviðmið
- til að setja sálfræði í samhengi við einkalíf samfélag og fræðilegt starf
- tjá sig skipulega í ræðu og riti og tekið þátt í umræðum um sálfræði
Grunnþættir menntunar
Læsi: Í sálfræðiáföngum er unnið með læsi þannig að nemendur lesa, greina og túlka texta, hugtök, rannsóknir og gögn í tengslum við viðfangsefni áfangans. Þeir þjálfast í gagnrýnni hugsun og að miðla þekkingu á skýran hátt.
Sjálfbærni: Í sálfræðiáföngum tengist sjálfbærni ábyrgð einstaklingsins gagnvart sjálfum sér, öðrum og samfélaginu. Nemendur skoða til dæmis hvernig viðhorf, gildi, hegðun og ákvarðanataka geta haft áhrif á einstaklinga og samfélag.
Heilbrigði og velferð: Í sálfræðiáföngum er eftir því sem við á fjallað um þætti sem tengjast andlegri, félagslegri og líkamlegri velferð. Þar má til dæmis skoða sjálfsmynd, tilfinningar, streitu, þroska, samskipti, hegðun og líðan.
Lýðræði og mannréttindi: Í sálfræðiáföngum er unnið með lýðræði og mannréttindi í gegnum umræður um mannlega hegðun, samskipti og ólík sjónarmið. Nemendur þjálfast í að hlusta, taka þátt í umræðum, rökstyðja skoðanir og bera virðingu fyrir öðrum.
.Jafnrétti: Í sálfræðiáföngum er fjallað um jafnrétti með því að skoða hvernig einstaklingar mótast af umhverfi sínu og samfélagslegum aðstæðum. Þar er til dæmis skoðað áhrif kyns, menningar, félagslegrar stöðu og annarra þátta á líðan og tækifæri.
Sköpun: Í sálfræðiáföngum fá nemendur tækifæri til að vinna skapandi með viðfangsefni áfangans, eftir því sem við á. Nemendur tengja fræðileg hugtök við raunveruleg dæmi, settar fram spurningar, unnin verkefni og miðlað niðurstöðum á fjölbreyttan hátt.