Uppbrotsdagur 18. febrúar

Á öskudag, miðvikudaginn 18. febrúar, er þemadagur í FS frá kl. 8:30-13:00. Nemendur þurfa að velja þrjár stöðvar fyrir þemadaginn og verða margar stöðvar í boði.

  • Tengillinn á skráninguna kemur á forsíðuna hér á heimasíðuna kl. 9:00 föstudaginn 13. febrúar.
  • Hér er kynning á stöðvum sem verða í boði.
  • Þemað í ár er Heilsa, vellíðan og kvikmyndir. Mæting er skráð þennan skemmtilega öskudag svo endilega skráðu þig á 3 stöðvar sem fyrst.
  • Allir eru hvattir til þess að vera í öskudagsbúning eða treyju í takt við daginn.
  • Hægt verður að kaupa armband á matartorgið vinsæla daginn áður og kostar það aðeins 1000 kr. Þar má borða eins mikið og mann langar!
  • Okkar vinsæli tónlistarmaður Jón Jónsson kemur í hádeginu og spila fyrir nemendur.


Dagskráin:

  • Kl. 8:30 - 9:30 Þemastöð
  • Kl. 9:30 - 10:00 Ávaxtahressing og uppákoma
  • Kl. 10:00 - 11:00 Þemastöð
  • Kl. 11:00 - 12:00 Matartorg og Jón Jónsson
  • Kl. 12:00 - 13:00 Þemastöð