Skólaslit vorannar og brautskráning Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram á sal skólans föstudaginn 23. maí. Útskrift vorsins er sú fjölmennasta í sögu skólans og var því fjölmenni á sal, útskriftarnemendur og fjölskyldur þeirra ásamt kennurum og starfsfólki skólans. Eftir einstaka veðurblíðu dagana á undan ákvað sólin að láta lítið á sér bera þennan dag en dagurinn var fallegur enda er útskriftardagur er alltaf mikill hátíðisdagur fyrir útskriftarnemendur og fjölskyldur þeirra og ekki síður fyrir starfsfólk skólans.
Að þessu sinni útskrifuðust 167 nemendur og er það stærsti hópur sem hefur útskrifast frá skólanum. Þar af voru 99 stúdentar, 40 luku verknámi, 18 luku námi af starfsnámsbrautum, 5 útskrifuðust af sjúkraliðabraut, 15 af starfsbrautum og 2 iðnmeistarar. Þá útskrifaðist fyrsti hópurinn úr ÍAK einka- og styrktarþjálfun en það voru 13 nemendur. Þess má geta að sumir ljúka prófi af fleiri en einni braut. Karlar voru 86 en konur 81. Alls komu 95 úr Reykjanesbæ, 25 úr Suðurnesjabæ, 10 úr Grindavík, 15 úr Vogum og 22 komu annars staðar af landinu.
Dagskráin var með hefðbundnu sniði. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðmundur Grétar Karlsson aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Hermann Borgar Jakobsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Gunnar Valdimarsson kennari flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en að þessu sinni lék Almar Örn G. Arnarson á trompet, Igor Kabala á harmoniku og Viktoria Isolde Nooteboom á píanó. Þau voru öll að ljúka stúdentsprófi af tónlistarbraut.
Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og þátttöku í félagslífi og má sjá nöfn verðlaunahafa hér. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti 100.000 kr. námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut Ísabella Auður Nótt Matthíasdóttir styrkinn. Ísabella hlaut einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi en hún útskrifaðist af félagsvísindabraut með 9,69 í meðaleinkunn.
Við útskriftina veittu foreldrafélag skólans og Reykjanesbær verðlaun fyrir jákvæða framkomu á skemmtunum félagsins í vetur. Það var Lilja Dögg Friðriksdóttir forvarnafulltrúi skólans sem afhenti verðlaunin. Það voru þau Arnór Berg Jóhannsson og Hafdís Rán Húnbogadóttir sem voru dregin úr hópi þeirra nemenda sem uppfylltu skilyrðin fyrir þátttöku en þau fengu bæði spjaldtölvu að gjöf.
Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita nemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Þær Anna Arnarsdóttir, Brynja Arnarsdóttir og Sandra Sól Aradóttir fengu 40.000 kr. styrk fyrir góðan árangur í tjáningu og ræðumennsku.
Við athöfnina veitti skólameistari Guðbjörgu Jónatansdóttur, Gunnari Valdimarssyni og Kristjönu Hildi Gunnarsdóttur gullmerki Fjölbrautaskóla Suðurnesja en þau hafa öll starfað við skólann í 25 ár. Það er hefð að veita starfsfólki skólans þessa viðurkenningu við þessi tímamót.
Að lokum sleit Kristján Ásmundsson skólameistari vorönn 2025.
Í myndasafninu er veglegur myndapakki frá útskriftinni.


