Á útskrift vorannar voru að venju veittar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu í námi og þátttöku í félagslífi. Að þessu sinni var Ísabella Auður Nótt Matthíasdóttir með hæstu einkunn við útskrift en hún var með 9,69 í meðaleinkunn. Á myndinni með fréttinni tekur Ísabella við viðurkenningu sinni úr hendi Kristjáns Ásmundssonar skólameistara.
- Ísabella Auður Nótt Matthíasdóttir fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir góðan árangur í ensku og sál- og uppeldisfræði. Hún fékk einnig gjafir frá Landsbankanum fyrir árangur sinn í íslensku, samfélagsgreinum og erlendum tungumálum, verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði og gjöf frá Þýska sendiráðinu fyrir góðan árangur í þýsku. Ísabella fékk námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut Ísabella 100.000 kr. styrk en hún var með 9,69 í meðaleinkunn. Hún fékk einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi.
- Elín Bjarnadóttir fékk verðlaun fyrir árangur sinn í íþróttafræði og spænsku og fyrir góðan árangur á afreksíþróttabraut. Elín fékk einnig verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði.
- Oskar Michal Cichy fékk verðlaun fyrir árangur sinn í stærðfræði, vefforritun og tölvugreinum. Hann fékk viðurkenningu frá DMM lausnum en fyrirtækið veitir þeim nemanda Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem útskrifast með afburðaárangri í forritun, styrk sem nemur skráningargjaldi ársgjalds við Háskóla Íslands eða samsvarandi upphæð gegn framvísun staðfestingu á greiðslu skólagjalda, kjósi nemandinn að hefja nám í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði á háskólastigi.
- Almar Örn Gærdbo Arnarson fékk verðlaun frá Efnafræðifélaginu fyrir góðan árangur í efnafræði og gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í stærðfræði og raungreinum. Almar fékk einnig Raungreinaverðlaun HR sem veitt eru fyrir góðan árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Um er að ræða bókaverðlaun, auk þess sem verðlaunahafar sem kjósa að hefja nám við Háskólann í Reykjavík fá niðurfelld skólagjöld fyrstu önnina í námi.
- Elva Bernharðs Guðmundsdóttir hlaut verðlaun fyrir árangur sinn í ensku, íslensku, spænsku og tölvuleikjagerð.
- Guðmunda Ösp Ólafsdóttir fékk verðlaun fyrir árangur sinn í ensku, sálfræði og fata- og textílgreinum.
- Thelma Kristín Freysdóttir fékk verðlaun fyrir árangur sinn í félagsfræði og spænsku og viðurkenningu frá Þekkingarsetri Suðurnesja fyrir góðan árangur í náttúrufræðigreinum.
- Igor Kabala fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í íslensku sem annað tungumál. Igor fékk Menntaverðlaun HÍ en þau eru veitt útskriftarnemenda sem hefur sýnt framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs auk þess að hafa sýnt eftirtektarverða frammistöðu á sviði lista eða íþrótta, átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans eða sýnt þrautseigju við erfiðar aðstæður. Verðlaunin eru 20 þús. kr. gjafabréf og að auki fær verðlaunahafi, kjósi hann að hefja nám við Háskóla Íslands, styrk sem nemur upphæð skrásetningargjalds fyrsta skólaárið, 75 þús. kr.
- Lilja Bergmann Tryggvadóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í sálfræði og verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði.
- Haukur Snær Hlynsson hlaut verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði og gjöf frá Stærðfræðifélaginu fyrir góðan árangur í stærðfræði.
- Róbert Páll Arason fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur á húsasmíðabraut og hann fékk einnig viðurkenningu frá Isavia fyrir góðan árangur í verk- og tæknigreinum.
- Arnar Smári Hannesson fékk gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í verk- og tæknigreinum og hann fékk einnig gjafir frá Ískraft, Rönning og Reykjafelli fyrir árangur sinn í rafiðngreinum.
- Marteinn Frans Svavarsson fékk gjafir frá Ískraft, Rönning og Reykjafelli fyrir árangur sinn í rafiðngreinum.
- Hilmar Máni Hlynsson hlaut viðurkenningar fyrir góðan árangur í stærðfræði og efnafræði.
- Tómas Breki Bjarnason fékk verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði.
- Agata Wanda Jedrzejczak fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur á listnámsbraut.
- Alexandra Líf Ingþórsdóttir og Alicja Íris Grochólska fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í fata- og textílgreinum.
- Dzana Crnac hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku.
- Elísabet Birgisdóttir, Gísli Grétar Sigurðsson og Jón Garðar Arnarsson fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í stærðfræði.
- Hafþór Ernir Ólason fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í viðskiptagreinum.
- Heba Lind Guðmundsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í sál- og uppeldisfræði.
- Ólafía Sigríður Árnadóttir og Sara Margrét Jóhannsdóttir fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í sálfræði.
- William Patrik Ryan fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í vefforritun.
- Þorbjörg Halldóra Gunnarsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í tölvuleikjagerð.
- Helgi Rúnar Þórarinsson fékk viðurkenningu vegna þátttöku á Íslandsmóti Iðngreina.
- Guðrún Lilja Magnúsdóttir, Hermann Borgar Jakobsson, Jökull Ingi Kjartansson, Kristín Embla Magnúsdóttir, Margrét Norðfjörð Karlsdóttir, María Rán Ágústsdóttir og Sóley Halldórsdóttir fengu viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda.