Frá útskrift haustannar

Brautskráning haustannar og skólaslit Fjölbrautaskóla Suðurnesja fóru fram föstudaginn 19. desember. Dagurinn var frekar dimmur og aðeins blautur en innandyra var eintóm birta og hlýja enda er þessi dagur er alltaf hátíðlegur fyrir útskriftarnemendur og fjölskyldur þeirra og ekki síður fyrir starfsfólk skólans.

Að þessu sinni útskrifuðust 54 nemendur; 32 stúdentar, 13 úr verk- og starfsnámi, 7 iðnmeistarar, 2 luku prófi af tölvuleikjabraut Keilis og 2 útskrifuðust af starfsbraut. Þess má geta að sumir luku prófi af fleiri en einni braut. Konur voru 30 en karlar 24. Alls komu 39 úr Reykjanesbæ, 9 úr Suðurnesjabæ, tveir úr Grindavík og Vogum og einn úr Reykjavík og Hafnarfirði.

Dagskráin fór fram á sal skólans og var með hefðbundnu sniði en athöfninni var einnig streymt. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Ívar Valbergsson vélstjórnarkennari flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en þar léku nemendur skólans sem eru einnig nemendur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Kristófer Orri Grétarsson, Matthías Sigurþórsson og Sindri Sveinsson léku á gítar ásamt kennara sínum, Arnari Frey Valssyni. Rannveig Jónsdóttir lék svo á selló en Mariia Ishchenko lék undir á píanó.

Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og þátttöku í félagslífi en yfirlit yfir verðlaunahafa má sjá hér. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti 100.000 kr. námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut Guðmundur Leo Rafnsson styrkinn. Guðmundur Leo hlaut einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi en hann útskrifaðist af raunvísindabraut með 9,71 í meðaleinkunn.

Ragnheiður Gunnarsdóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita útskriftarnemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Þau Berglind Harpa Óladóttir, Rakel Elísa Haraldsdóttir, Stefan Bodrozic, Thelma Kristín Kristinsdóttir og Stefan Bodrozic fengu öll 40.000 kr. styrk fyrir góða frammistöðu í tjáningu og ræðumennsku.

Við athöfnina veitti skólameistari Elínu Rut Ólafsdóttur áfangastjóra og Ívari Valbergssyni vélstjórnarkennara gullmerki Fjölbrautaskóla Suðurnesja en þau hafa bæði starfað við skólann í 25 ár. Það er hefð að veita starfsfólki skólans þessa viðurkenningu við þessi tímamót.

Að lokum sleit Kristján Ásmundsson skólameistari haustönn 2025.

Í myndasafninu er veglegur myndapakki frá útskriftinni.