Vorhefti Vizkustykkis komið út

Miðvikudaginn 29. apríl kom út nýtt tölublað af skólablaðinu Vizkustykki. Blaðið er skemmtilegt og glæsilegt að vanda og var ekki annað að sjá en nemendur hafi verið ánægðir með blaðið. Nýja tölublaðið er litríkt og líflegt og mjög mikið myndskreytt. Ritstjórn blaðsins hóf dreifingu á sal í hádeginu eftir að Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir ritstjóri hafði flutt stutt ávarp og kynnt blaðið. Þá var komið að viðstöddum að reyna að tryggja sér eintak og gekk mikið á.

Þess má geta að Vizkustykki kom fyrst úr árið 1977 og hefur komið út síðan, reyndar nokkuð óreglulega. Alls hafa komið út 48 tölublöð og er hægt að skoða þau á öll á vef nemendafélagsins.

Við óskum ritstjórn til hamingju með blaðið.

Í myndasafninu eru myndapakki frá útgáfu Vizkustykkis en myndirnar eru frá ritstjórn blaðsins.