Vorhefti Vizkustykkis komið út

Þriðjudaginn 29. apríl kom út nýtt tölublað af skólablaðinu Vizkustykki. Blaðið er skemmtilegt og glæsilegt að vanda og var ekki annað að sjá en nemendur hafi verið ánægðir með blaðið. Að þessu sinni er blaðið óvenjulitríkt og líflegt.

Þess má geta að Vizkustykki kom fyrst úr árið 1977 og hefur komið út síðan, reyndar nokkuð óreglulega. Alls hafa komið út 46 tölublöð og er hægt að skoða þau á öll á vef nemendafélagsins.

Við óskum ritstjórn til hamingju með blaðið.