Á útskrift vorannar voru að venju veittar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu í námi og þátttöku í félagslífi. Að þessu sinni var Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir með hæstu einkunn við útskrift en hún var með 9,64 í meðaleinkunn. Á myndinni með fréttinni er Ástríður ásamt fjölskyldu sinni.
- Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir góðan árangur í efnafræði og spænsku. Hún fékk gjafir frá Landsbankanum fyrir árangur sinn í íslensku og einnig stærðfræði og raungreinum og verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði. Ástríður fékk námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn af stúdents- og verknámsbrautum við útskrift og hlaut Ástríður 150.000 kr. styrk en hún lauk prófi af raunvísindabraut með 9,64 í meðaleinkunn. Hún fékk einnig 50.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi.
- Birgitta Fanney Bjarnadóttir fékk verðlaun fyrir árangur sinn í íslensku og spænsku. Hún fékk einnig gjöf frá Landsbankanum fyrir árangur sinn í stærðfræði og raungreinum, verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði og frá Efnafræðifélagi Íslands fyrir góðan árangur í efnafræði. Birgitta Fanney hlaut Menntaverðlaun Háskóla Íslands en þau eru veitt framhaldsskólanemum sem sýnt hafa framúrskarandi árangur á stúdentsprófi, með meðaleinkunn 8,75 eða hærri, auk þess að hafa náð eftirtektarverðum árangri á sviði lista eða íþrótta, átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans eða sýnt þrautseigju við erfiðar aðstæður. Verðlaunin eru 20 þús. kr. gjafabréf og að auki fær verðlaunahafi, kjósi hann að hefja nám við Háskóla Íslands, styrk sem nemur upphæð skrásetningargjalds fyrsta skólaárið, 100 þús. kr.
- Valdís Árný Jóhannsdóttir hlaut viðurkenningar frá skólanum fyrir árangur sinn í ensku, sálfræði og spænsku. Hún fékk einnig gjöf frá Landsbankanum fyrir árangur sinn í erlendum tungumálum.
- Birta Þyrí Sverrisdóttir fékk verðlaun fyrir árangur sinn í sálfræði, spænsku, stærðfræði og viðskiptafræði.
- Aleksander Klak fékk verðlaun fyrir góðan árangur í forritun, tölvugreinum og vefforritun. Hann hlaut einnig verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði og gjöf frá Stærðfræðifélaginu fyrir góðan árangur í stærðfræði. Aleksander fékk viðurkenningu frá DMM lausnum en fyrirtækið veitir þeim nemanda Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem útskrifast með afburðaárangur í forritun 100.000 kr. styrk gegn framvísun staðfestingar á greiðslu skólagjalda, kjósi nemandinn að hefja nám í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði á háskólastigi.
- Karolina Staselyte hlaut verðlaun fyrir árangur sinn í forritun, stærðfræði, tölvugreinum og vefforritun.
- Júlía Inga Jónsdóttir fékk verðlaun fyrir árangur sinn í líffræði og viðurkenningu frá Þekkingarsetri Suðurnesja fyrir góðan árangur í náttúrufræðigreinum. Júlía fékk einnig Raungreinaverðlaun HR sem veitt eru fyrir góðan árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Um er að ræða bókaverðlaun, auk þess sem verðlaunahafar sem kjósa að hefja nám við Háskólann í Reykjavík fá niðurfelld skólagjöld fyrstu önnina í námi.
- Hafþór Logi Sigurðssonfékk gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í verk- og tæknigreinum og hann fékk einnig gjafir frá Ískraft, Rönning og Reykjafelli fyrir árangur sinn í rafiðngreinum.
- Hanna Gróa Halldórsdóttir fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir góðan árangur í lífræði og spænsku og verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði.
- Hanna Sigríður Hallsdóttirhlaut viðurkenningar fyrir góðan árangur í bókfærslu og stærðfræði.
- Svandís Huld Bjarnadóttirfékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í listasögu og afburðaárangur á listnámsbraut.
- Tómas Máni Bjarnasonfékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í fata- og textílgreinum og afburðaárangur á framhaldsskólabraut starfsbraut
- Una Rós Gísladóttirhlaut viðurkenningu frá skólanum fyrir góðan árangur í fata- og textílgreinum og gjöf frá Þýska sendiráðinu fyrir góðan árangur í þýsku.
- Elín Snæbrá Bergsdóttir og Margrét Júlía Jóhannsdóttir fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku.
- Eva María Eiríksdóttir og Kristjana Rose Valle fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í líffræði.
- Lorena Portmann og Sólveig Halldórsdóttir fengu viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í ÍAK einka- og styrktarþjálfun.
- Kári Kjartansson fékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í bókfærslu og fyrir störf í þágu nemenda.
- Abdallah Rúnar Awal fékk viðurkenningu fyrir árangur sinn í stærðfræði.
- Kamilla Anísa Aref fékk verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði.
- Dagný Björk Óladóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í forritun.
- Emma Karín Egilsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í stærðfræði.
- Elísabet Kristín Ásbjörnsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í spænsku.
- Konstantin Sadenko fékk viðurkenningu fyrir Afburðaárangur á afreksíþróttalínu en Konstantin stundaði þar nám í 5 annir.
- Björn Ólafur Valgeirsson, Hekla Ingvadóttir og Hildur Ingvadóttir fengu viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda.