Viðbót við verðlaun við útskrift

Vegna galla í útkeyrslu úr skólakerfinu Innu urðu þau leiðu mistök við útskrift vorannar að einn útskriftarnemandi fékk ekki verðlaun sem hann átti að fá fyrir góðan námsárangur. Það var Abdallah Rúnar Awal sem var einn þeirra sem átti að fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í stærðfræði. Mistökin uppgötvuðust ekki fyrr en eftir athöfnina og því kom Abdallah Rúnar í skólann í dag og fékk verðlaunin afhent. Við biðjum hann afsökunar á þessum mistökum og óskum honum til hamingju með verðlaunin og stúdentsprófið.