Varstu í FS? Ertu með skemmtilegar sögur frá FS-árunum?

FS á stórafmæli á þessu ári en í haust verða 50 ár frá því skólinn hóf göngu sína. Þessu verður að sjálfsögðu fagnað á margvíslegan hátt þegar þar að kemur.

Núna langar okkur að heyra í fyrrverandi nemendum og fá skemmtilegar sögur úr skólanum og skólalífinu í gegnum árin. Hvort sem það eru sögur af eftirminnilegum kennurum eða nemendum, skólastarfinu eða félagslífinu hvetjum við gamla FS-inga til að láta í sér heyra.

Sögurnar verða svo birtar á vef og öðrum miðlum skólans og einhverjar í afmælisriti sem kemur út í haust.

Þeir sem vilja taka þátt nota þennan tengil og setja þar inn sögurnar og upplýsingar um sig. Gaman væri ef fólk léti mynd fylgja með og þá helst mynd frá FS árunum.

SENDA INN SÖGUR ÚR FS