Nú er val fyrir haustönn 2026 að hefjast en valið stendur yfir frá 9.–26. febrúar.
Á þessu tímabili þurfa allir sem ætla að stunda nám í skólanum á haustönn 2026 að velja áfanga í INNU.
Upplýsingar og leiðbeiningar um valið má finna á heimasíðu skólans undir ÖNNIN - VAL.
- Nemendur á fyrsta ári velja í umsjónartíma en námsráðgjafar og umsjónarkennarar munu leiðbeina um valið.
- Nemendur í verknámi og starfsnámi velja hjá/með Guðrún Jónu, námsráðgjafa, en hún mun hafa samband við nemendur.
- Nemendur í listnámi og tölvufræðibrautum velja hjá/með námsráðgjafa /áfangastjóra.
- Nemendur á starfsbrautum velja með kennurum sem sjá um valið.
- Nemendur á stúdentsbrautum, aðrir en nýnemar, velja sjálfir í INNU.
- Muna að skoða námsáætlunina (Excel-skjalið) sem er hjá ykkur í viðhengi í INNU, ÁÐUR en þið byrjið að velja.
- Þeir nemendur sem stefna á útskrift frá FS í desember 2026 bóka tíma hjá Elínu áfangastjóra en það er gert hér.
Endilega skoðið vel brautina sem þið eruð skráð á en hana má finna á lista yfir námsbrautir hér á vef skólans.
Verið dugleg að spyrja kennara, námsráðgjafa og áfangastjóra um hvaðeina sem tengist valinu en upplýsingar um áfangana, sem eru í boði, eru á heimasíðunni og einnig á auglýsingaskjám í skólanum.
Munið að valið er í raun umsókn um skólavist fyrir næstu önn, haustönn 2026.