Treyjudagurinn í FS

Föstudaginn 4. september var Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn hér á landi. Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Dagurinn hefur verið haldinn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil.

Börn með krabbamein, styrktarfélag stendur að deginum. Félagið styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra með fjölbreyttum hætti. Hægt er að styrkja félagið hér: https://treyjudagur.is/

Nemendur og starfsfólk skólans var duglegt að taka þátt og fjölmargir mættu í treyjum íþróttaliða víða að úr heiminum.