Þrískólafundur í FS

Samstarfsfundur starfsfólks framhaldsskólanna á Suðurnesjum, Vesturlandi og Suðurlandi var haldinn hér í FS mánudaginn 29. september. Þessir skólar hafa lengi unnið saman að ýmsum málum eins og námsframboði og skipulagi náms. Allt starfsfólk skólanna hittist síðan á tveggja til þriggja ára fresti og skiptast skólarnir á um að halda þá fundi.

Að þessu sinni var komið að okkur að halda fundinn. Kristján Ásmundsson skólameistari bauð fólk velkomið og setti fundinn. Anna Sigurðardóttir og Hermína Gunnþórsdóttir fluttu síðan fróðlegt erindi um gæði kennslu og ræddu sérstaklega um líðan nemenda í því sambandi. Að því loknu skipti starfsfólk sér í hópa eftir kennslugreinum og störfum og bar saman bækur sínar.

Að loknum ljúffengum hádegisverði var komið að Viðari Halldórssyni að flytja áhugavert erindi um félagslega töfra og hvernig þeim er ógnað í nútímasamfélagi. Eftir þetta skemmtilega framlag spjallaði fólk saman áður en haldið var heim.

Við þökkum gestum okkar fyrir komuna, gagnlegan fund og skemmtilegan dag.

Í myndasafninu eru nokkar myndir frá Þrískólafundinum.