Sýning útskriftarnemenda af listnámsbraut

Nú stendur yfir barna og ungmennahátíð í Duushúsum í Reykjanesbæ. Útskriftarnemar á listnámsbraut taka þátt og er sýning á verkum þeirra í Bíósalnum.

Sýningin var opnuð fimmtudaginn 30. apríl. Fjölmenni var við opnunina en Helga Þórsdóttir forstöðumaður Listasafns Reykjanesbæjar bauð gesti velkomna fyrir hönd safnsins. Sýningin verður opin í Duushúsum til 10. maí og hvetjum við alla til að skoða þessa skemmtilegu sýningu.

Níu nemendur eiga verk á sýningunni en það eru eru þau Birna Margrét Færseth, Embla Sigríður Daníelsdóttir, Fallah Hassan Abdullah, Guðný Kristín Ásgeirsdóttir, Ísabella Chadwick Hilmisdóttir, Katla María Brynjarsdóttir, Sandra Maria Rawluszko, Svandís Huld Bjarnadóttir og Vilborg Ronja Ragnarsdóttir. Verkin unnu þau í akrýl og með blandaðri tækni undir handleiðslu kennara síns, Írisar Jónsdóttur.

Í myndasafninu eru myndir frá opnun sýningarinnar í Duus-húsum en þar eru m.a. myndir af öllum nemendunum með verk sín.