Silja heimsótti afreksnemendur

Silja Úlfarsdóttir frjálsíþróttakona heimsótti nemendur á afreksíþróttalínu og fræddi þá um allt sem tengist hlaupum. Hún fór yfir grunnatriðin í hlaupaþjálfun, hvernig hlaupastílinn getur unnið með eða móti íþróttafólki og hvernig það getur lagað veikleika sína.

Það er óhætt að segja að Silja þekki hvað íþróttamaður þarf til að ná árangri. Hún hefur sjálf verið afrekskona og var fljótasta kona landsins í áratug, hefur þjálfað okkar helstu afreksmenn, mörg íþróttalið, unglinga sem hafa náð markmiðum sínum og unga íþróttamenn sem eru að stíga sín fyrstu skref. Hún hefur komið að þjálfun íþróttamanna úr mörgum íþróttagreinum en sjálf hefur hún grunn úr frjálsum íþróttum, handbolta og fótbolta.

Silja útskrifaðist með B.S. gráðu í viðskiptafræði og stjórnun frá Clemson University þar sem hún stundaði nám á skólastyrk. Hún er einnig með mastersgráðu frá Bifröst í forystu og stjórnun. Eftir nám æfði hún með heims- og ólympíumeisturum í Atlanta í nokkur ár og lærði mikið þar um þjálfun og þjálffræði. Silja hefur lokið ÍAK einkaþjálfaranáminu.