Samtalið í FS 10. október

Laugardaginn 10. október fer Samtal fram um allt land. Þar hittist fólk og ræðir hvernig samfélag við viljum skapa saman. Meðal þeirra staða sem Samtalið fer fram er Fjölbrautaskóli Suðurnesja. Húsið opnar kl. 13:30 fyrir þátttakendur. Samtalið sjálft hefst kl. 14:00 og stendur til kl. 17:00.

Í lok samtalsins tekur hvert borð saman stutta setningu eða niðurstöðu fyrir hvert umræðuefni. Setningin á að lýsa því sem kom fram í samtalinu og þarf ekki að fela í sér að allir við borðið hafi verið sammála.

Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Samtal varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari verkefnisins. Frá upphafi hefur áherslan verið skýr: Samtalið eigum við saman.

Hægt er að skrá sig og finna frekari upplýsingar á talasaman.is.