Samtal þjóðar í FS

Laugardaginn 10. október fór Samtal þjóðar fram í framhaldsskólum og háskólum landsins og var Fjölbrautaskóli Suðurnesja þar á meðal. Markmiðið var að skapa vettvang þar sem fólk á öllum aldri gat komið saman, hlustað hvert á annað og rætt spurninguna Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Þátttakendur skiptu sér í hópa og lóðsar úr hópi nemenda leiddu umræðurnar í hverjum hóp. Niðurstöðurnar verða kynntar á viðburði í Hörpu sunnudaginn 11. október og jafnframt birtar á talasaman.is.