Rafiðnnemar fengu vinnubuxur

Mánudaginn 28. september mættu fulltrúar Rafmenntar, fræðsluseturs rafiðnaðarins, og afhentu rafiðnnemum á 1. ári vandaðar vinnubuxur. Þetta er fimmta árið í röð sem Rafmennt gefur buxur. Allir nemendur sem hefja nám í rafiðnum fá þessa gjöf og það var því stór hópur sem fékk buxur að þessu sinni. Það voru Þór Pálsson framkvæmdastjóri Rafmenntar og Hafdís Reinaldsdóttir skrifstofustjóri sem afhentu gjöfina. Við þökkum fyrir okkar fólk en gjöfin á eftir að nýtast vel í námi og starfi.