Rafiðnnemar fengu vinnubuxur

Fimmtudaginn 23. október mættu fulltrúar Rafmenntar, fræðsluseturs rafiðnaðarins, og afhentu rafiðnnemum á 1. ári vandaðar vinnubuxur. Þetta er fjórða árið í röð sem Rafmennt gefur buxur en allir nemendur sem hefja nám í rafiðnum fá þessa gjöf og einnig kennarar. Það var stór hópur sem fékk buxur að þessu sinni en reyndar vantaði nokkra nemendur þennan dag. Það voru þær Elísa Einarsdóttir og Hafdís Reinaldsdóttir frá Rafmennt sem afhentu gjöfina. Við þökkum fyrir okkar fólk en gjöfin á eftir að nýtast vel í námi og starfi.