Námsbraut ÍAK í einka- og styrktarþjálfun hefur gert samstarfssamning við íslenska heilsuappið LifeTrack, sem verður nú hluti af kennslu í næringarfræði. Appið er nýstárleg og aðgengileg tæknilausn sem gerir notendum kleift að fylgjast með næringarinntöku sinni á einfaldan og skilvirkan hátt.
Heilbrigður lífsstíll og aukin afkastageta eru í forgrunni bæði í náminu og í þróun LifeTrack-appsins. Með markvissri notkun á tæknilausnum eins og LifeTrack og öflugri fræðslu í náminu fá nemendur verkfæri til að hámarka árangur, hvort sem er í eigin þjálfun eða í starfi með öðrum.
„Við erum gríðarlega ánægð með að fá LifeTrack inn í kennsluna hjá okkur. Appið er öflugt og notendavænt sem styður við markmið okkar um að bjóða upp á nútímalegt og metnaðarfullt nám. Með því að nýta nýjustu tækni í kennslu getum við betur undirbúið nemendur okkar fyrir fjölbreytt og krefjandi störf í heilsurækt og þjálfun,“ segir Elvar Smári Sævarsson, fagstjóri ÍAK einka- og styrktarþjálfunarnáms Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
„Við hjá LifeTrack erum stolt af því að taka þátt í þessu samstarfi. Það er okkur mikilvægt að styðja við menntun framtíðarþjálfara og hjálpa þeim að nýta tæknina til að bæta heilsu og afköst fólks. Með þessu samstarfi fá nemendur tækifæri til að kynnast appinu í raunverulegum aðstæðum og læra að nýta það á markvissan hátt í starfi,“ segir Ingi Torfi Sverrisson, annar stofnenda LifeTrack.